Farþegasiglingar á ný frá Norðurfirði Kristján Már Unnarsson skrifar 17. mars 2015 11:31 Gönguhópur á bryggjunni á Norðurfirði á leið í siglingu með Freydísi, bát Reimars Vilmundarsonar sumarið 2008. Mynd/Þorgerður Sigurðardóttir.
Áætlunarsiglingar úr Árneshreppi með ferðamenn norður á Strandir og Hornstrandir hefjast á ný í sumar eftir þriggja ára hlé. Fyrirtækið GJÁ-útgerð er að láta smíða sérstakan farþegabát með rými fyrir 18 manns sem áformað er að sigli reglulega frá Norðurfirði á tímabilinu frá miðjum júní og fram undir lok ágústmánaðar. Að fyrirtækinu standa Ásgeir Salómonsson og synir hans tveir, Gunnar Ásgeirsson og Jón Geir Ásgeirsson. Þeir eru búsettir í Hafnarfirði en ættaðir frá Ísafirði og hafa á sumrin stundað strandveiðar á Vestfjörðum, meðal annars frá Norðurfirði. „Við vildum prófa eitthvað nýtt. Við vorum aðeins í þessu í fyrra,“ segir Jón Geir í samtali við fréttastofu, en ferðaþjónustan verður rekin í nafni Strandferða. Stefnt er að föstum áætlunarferðum frá Norðurfirði á föstudögum og sunnudögum með viðkomu í eyðibyggðum í Drangavík, Skjaldabjarnarvík, Reykjarfirði, Furufirði, Smiðjuvík, Látravík og Hornvík. Þá verður föst ferð í Reykjarfjörð á laugardögum að morgni og til baka að kvöldi. Auk þess býðst hópum að leigja bátinn til siglinga á öðrum dögum ef farþegar eru ekki færri en fimm talsins. Bolvíkingurinn Reimar Vilmundarson ruddi brautina þegar hann bauð upp á áætlunarsiglingar þessa leið á árunum 1996 til 2012 og rak gistingu í Bolungarvík á Ströndum. VIÐBÓT kl. 17.40: Fyrirtækið Hornstrandaferðir, sem Arinbjörn Bernharðsson rekur, hefur undanfarin tvö sumur boðið upp á siglingar með ferðamenn á Hornstrandir frá Norðurfirði og áformar að halda þeim áfram í sumar. Það hafa þó ekki verið fastar áætlunarferðir.
Mest lesið Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sjá meira