Þaulskipulagt rán um hábjartan dag í Ármúla Birgir Olgeirsson skrifar 1. apríl 2015 10:39 Kaffistofa Samhjálpar í Borgartúni, þangað sem þvottavélin og þurrkarinn áttu að fara. Vélunum var hins vegar stolið af markaði Samhjálpar í Ármúla um hábjartan dag. Vísir/Arnþór
Þaulskipulagt rán var framið um hábjartan dag í markaði Samhjálpar í Ármúla í byrjun síðastliðins mánaðar. Starfsmenn Samhjálpar höfðu komið fyrir þvottavél og þurrkara af Mile-gerð í starfsmannarými markaðarins í Ármúla en þar átti að geyma vélarnar þar til þær yrðu fluttar í kaffistofu Samhjálpar í Borgartúni. „Enginn vissi um þetta nema við sem vorum að flytja,“ segir Vörður Leví Traustason hjá Samhjálp. Skömmu síðar mætir maður á sendiferðabíl að markaði Samhjálpar í Ármúla og segist vera að sækja þvottavélina og þurrkarann. Þann dag var afleysingafólk á markaðnum og segir Vörður Leví manninn á sendiferðabílnum hafa sagst vera á vegum Samhjálpar og sýnt afleysingarfólkinu SMS-skilaboð því til staðfestingar að hann ætti að sækja vélarnar og flytja þær á endanlegan áfangastað að kaffistofu samtakanna í Borgartúni. Síðar kom á daginn að maðurinn var ekki allur þar sem hann er séður og hefur ekkert spurst til vélanna. „Þetta var þaulskipulagt rán um miðjan dag,“ segir Vörður Leví. Ránið hefur verið kært til lögreglu sem er með það til rannsóknar og var hægt að gefa lýsingu á manninum sem þó er ekki vitað með vissu hver er. Samtökin reka einnig tvö áfangaheimili, Brú og Spor, og var nýlegum Philips-flatskjá stolið þaðan nýlega. Vörður Leví segir málið allt saman afar dapurlegt því þvottavélina og þurrkarann átti að nota á kaffistofunni Samhjálpar í Borgartúni sem er rekin fyrir utangarðsfólk og aðra aðstöðulausa.
Mest lesið Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Friðartillaga Ísraela sem Biden kynnti virðist fá hljómgrunn Erlent Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu Innlent VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Innlent „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Innlent Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Innlent Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Innlent Fleiri fréttir Ólík sýn á hvort Íslandi eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Skítkast í „skrýtinni og óvæginni“ kosningabaráttu „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Mótmælin í dag þau hörðustu í mörg ár Sækja veikan jeppamann á Langjökli VÍS þarf að bæta hluta jarðýtu í mannskæðu vinnuslysi Lokasprettur fyrir kosningar og umræða um kynbundið ofbeldi Ný könnun sýnir stefna í æsispennandi kjördag Hvar áttu að kjósa í forsetakosningum? Fyrirskipar forsætisráðuneytinu að fara yfir ferla „Heiðurstengt ofbeldi er ekki okkar stærsta vandamál“ Eldgosið í beinni útsendingu Taka aftur við eignum í Grindavík eftir helgi Páll sýknaður Tuttugu sendlar Wolt eiga yfir höfði sér kæru Þorvaldur tekur undir goslokaspá Haraldar Gætu gloprað niður sigrinum eða tryggt sér hann í kvöld Hefði „slátrað“ dóttur sinni byggju þau í „arabalandi“ Viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag Piparúða beitt gegn mótmælendum í Skuggasundi Maðurinn sem féll í Fnjóská fannst látinn Lífið brosir við mæðgum eftir áralangt einelti Þakkar fyrir að hafa ekki þurft að beita kylfum Notuðu piparúða á mótmælendur Hvattur til að draga sig til hlés til að klekkja á Katrínu Sérfræðingar í straumvatnsleit aðstoða við leit í Fnjóská Gekk misvel að tala um kvótakerfið á fjörutíu sekúndum á ensku Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi Alþjóðasamfélagið sé að klikka á Gasa Sjá meira