Viðskipti innlent

Hálfdan ráðinn forstjóri Parlogis

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hálfdan Gunnarsson.
Hálfdan Gunnarsson.
Hálfdan Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri þjónustufyrirtækisins Parlogis ehf. Hann tekur við starfinu af Guðnýju Rósu Þorvarðardóttur sem lætur af störfum að eigin ósk. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hálfdan er véla- og iðnaðarverkfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka rekstrar- og vörustjórnunarreynslu. Hálfdan var einn af stofnendum AGR ehf. og stýrði uppbyggingu þess bæði á Íslandi og erlendis á árunum 1998 – 2007 auk þess að sinna stundakennslu við Háskólann í Reykjavík um nokkurra ára skeið.

Þá starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings og Arion banka frá 2007–2009. Frá árinu 2009 hefur Hálfdan starfað sem forstöðumaður innkaupa- og rekstrarþjónustu Orkuveitu Reykjavíkur. Hálfdan er giftur Þórhildi Ólafsdóttur og eiga þau fjögur börn.

Hálfdan segir mjög spennandi að taka við rekstri Parlogis á þessum tímapunkti.

 

„Fyrirtækið býr yfir afar góðum innviðum til að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu í vörustjórnun og gera þeim kleift að einbeita sér að markaðs- og sölumálum. Ég hlakka til að vinna með öflugum stjórnendum og samstarfsfólki við að efla þjónustuframboðið og nýta vaxtartækifæri sem eru til staðar,“ segir Hálfdan.

Jóhann Ingi Kristjánsson, stjórnarformaður Parlogis, segir þá reynslu og þekkingu sem Hálfdan hafi muni nýtast fyrirtækinu á spennandi tímum.

„Parlogis hefur sterka stöðu á markaði, býr að góðum viðskiptavinum til langs tíma og frábæru starfsfólki. Fyrir hönd stjórnarinnar þakka ég Guðnýju Rósu fyrir farsæl störf hennar í þágu Parlogis undanfarin 10 ár. Fyritækið hefur sótt inn á nýja markaði og vaxið undir hennar stjórn.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×