Viðskipti innlent

Erlendir þættir ástæður verðhjöðnunarinnar

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Þórólfur Matthíasson er prófessor í hagfræði.
Þórólfur Matthíasson er prófessor í hagfræði. Vísir/Stefán
Verðhjöðnun varð á milli ágúst og september, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,39 prósent í september frá ágústmánuði. Ef húsnæði er undanskilið var verðhjöðnunin 0,62 prósent frá fyrri mánuði. 



Ofhitnun í kortunum

Á sama tíma er hins vegar rætt um merki  ofhitnunar  í efnahagslífinu, þá sérstaklega í kjölfar nýrra kjarasamninga sem fela í sér umtalsverðar hækkanir. Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði, segir þetta geta farið saman.



„Verðlagið mótast ekki bara af kjarasamningum heldur mótast líka af verðlagi á vörur sem við flytjum inn og af genginu; auk þessara innlendu þátta. Og þegar menn eru að  velta  fyrir sér áhrifum kjarasamninga á verðlag er það þessi innlenda verðmyndun sem menn eru að horfa til,“ segir Þórólfur.



Bensín hefur áhrif á flugið

Stærstu áhrifaþættirnir í vísitölunni voru verð á flugfargjöldum til útlanda, sem lækkuðu um tæpan fjórðung, og bensínlækkun um 5,3 prósent. Sumarútsölur eru að mestu gengnar til baka og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,4 prósent. Vísitalan eins og hún stendur núna gildir til verðtryggingar í nóvember.



Þórólfur segir að þessir tveir þættir sem veigamestir eru til lækkunar vísitölunnar séu meðal þeirra erlendu þátta sem hann nefnir.  „Það sem við erum að  sjá núna eru áhrif erlendu  þáttanna . Bæði er verðlækkun á olíu, og mjög mikil, og olíuverð hefur mikil áhrif á flugfargjöld, sem koma inn í þessa mælingu,” segir hann. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×