Rallýbílasýning á Korputorgi í tilefni 40 ára sögu ralls á Íslandi Finnur Thorlacius skrifar 25. september 2015 15:30 Í hérlendri rallkeppni.
40 ár eru liðin frá því að fyrsta rall á Íslandi var haldið og því ætlar Bifreiðaíþróttaklúbbur Reykjavíkur að halda rallsýningu samhliða ralli sem fram fer um helgina. Sýningin fer fram á Korputorgi en þar verður hægt að skoða ýmis keppnistæki sem tekist hefur að varðveita á þessum 40 árum sem og ýmsa af nýjustu og öflugustu rallakstursbílum landsins sem og að nokkrir gamlir og góðir rallökumenn s.s. Ómar Ragnarsson, Rúnar Jónsson og Daníel sigurðsson verða á svæðinu. Sýningin verður opin á föstudaginn (25.september) frá kl 19 en það kvöldið mæta gamlir rallarar og segja frægðarsögur af rallakstrinum í gegnum tíðina. Sýningin heldur áfram á laugardagsmorgun og opnar kl 10:00 og stendur fram til 19:00. Klukkan 10 á laugardagsmorgun hefst svo rallið sjálft en í þessu ralli verður keyrt um Skjaldbreiðarveg og Uxahryggi í nágrenni Þingvalla. Samansöfnun keppenda verður svo á Korputorgi um 16:30 fyrir utan sýningarhúsnæðið en þar mun verðlaunaafhending fara fram. Um helgina gætu úrslit íslandsmeistaramótsins ráðist, nánari upplýsingar um rallið má finna á heimasíðu Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, www.bikr.isSjá má nokkrar myndir úr gömlum rallkeppnum hér að neðan.Þessi rallkeppni virðist hafa hafist fyrir utan Hótel Loftleiði fyrir margt löngu.Bræðurnir Jón og Ómar Ragnarssynir að bagsa við rallbíl sinn í einni keppninni.Góð tilþrif úr rallkeppni á fyrri árum.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent