Risinn á veitingamarkaði: Foodco kaupir Roadhouse ingvar haraldsson skrifar 7. maí 2015 11:23 Framkvæmdir við opnun Roadhouse sem nú er að komast í eigu Foodco. vísir/stefán
Foodco er við það að festa kaup á veitingastaðnum Roadhouse við Snorrabraut. Starfsmönnum Roadhouse var tilkynnt um kaupin í gær. Foodco er risi á veitingamarkaði en Roadhouse verður tuttugasti veitingastaðurinn í eigu Foodco. Yfir 400 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu sem á fyrir veitingastaði American Style, Saffran, Eldsmiðjunnar og Aktu Taktu auk þess að eiga Greifann og Pítuna. Velta Foodco var 3,2 milljarðar árið 2013 en félagið er að mestu í eigu feðganna Þórarins Ragnarssonar og Jóhanns Arnar Þórarinssonar. Feðgarnir eiga 80 prósent hlutafjár í félaginu. Þá á Óttar Þórarinsson 10 prósenta hlut og félagið Eldheimar, sem er í eigu Bjarna Stefáns Gunnarssonar, á 10 prósenta hlut. Foodco var stofnað árið 2002. Félagið keypti American Style og Aktu Taktu árið 2004. Árið 2006 keypti Foodco svo Pítuna. Ári síðar bættist Eldsmiðjan og Greifinn í safnið. Það var svo árið 2011 sem félagið festi kaup á Saffran.Hagnaður Foodco í milljónum króna | Create infographicsHagnast um 1,3 milljarða á fimm árum Samanlagður hagnaður Foodco á árunum 2009-2013 nam 1,35 milljörðum króna. Fyrirtækið hagnaðist um 403 milljónir króna árið 2013. Það var þó að mestu vegna endurútreiknings lána á árinu en lán félagsins voru færð niður um 376,5 milljónir króna. Félagið hagnaðist um 198 milljónir króna árið 2012. Hagnaður félagsins árið 2011 var 53 milljónir króna en það ár festi félagið kaup á Saffran. Hagnaður félagsins var 371 milljón króna árið 2010 og 326 milljónir árið 2009.
Tengdar fréttir Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
Sakaður um að hafa svikið út skyndibita fyrir 350 þúsund Sigurður Ingi Þórðarson, betur þekktur sem Siggi hakkari er sakaður um að hafa svikið út mat frá American Style, KFC, Subway, Domino's og fleiri skyndibitastöðum á árunum 2012 og 2013. 11. júní 2014 14:38