Eldur í Plastiðjunni á Selfossi Bjarki Ármannsson og Atli Ísleifsson skrifa 23. nóvember 2015 22:46 Plastiðjan stendur við Gagnheiði. Mynd/Páll Jökull Pétursson
Mikill eldur kom upp í kvöld í Plastiðjunni á Selfossi sem stendur við Gagnheiði. Allir viðbragðsaðilar í Árnessýslu hafa verið kallaðir út ásamt hjálparsveit skáta í Hveragerði. Að sögn sjónarvotts er lögregla búin að loka nærliggjandi götum. Svartan reyk leggur yfir hverfið og veður er stillt. Verið er að rýma hús í Hagahverfi og ganga björgunarsveitir þar hús úr húsi.Mikill bruni er nú í húsnæði Plastiðjunnar á Selfossi að Gagnheiði 19. Veður er stillt en reykur berst yfir Hagahverfi...Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Monday, 23 November 2015Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöð í Vallaskóla og eru íbúar í nágrenni við brunann hvattir til að fara þangað. Eldurinn kom upp um hálfellefuleytið og varð fljótt mjög mikill. Plastiðjan stendur í iðnaðarhverfi og liggur nálægt húsi HP kökugerðar. Verið er að passa upp á að eldurinn fari ekki í nærliggjandi hús.Mynd/Sverrir ÓmarUppfært 23.40: Pétur Pétursson, varaslökkviliðsstjóri Brunavarna Árnessýslu, segir að útlit sé fyrir að búið sé að ná tökum á eldinum. Ekki sé hægt að segja til um eldsupptök á þessari stundu. „Það er að gjósa upp hjá okkur smá eldur akkúrat núna og við miðum beint á hann en við erum að vona að okkur takist að halda þessu svona,“ segir hann. „Það getur brugðið til beggja vona en eins og er lítur ekki út fyrir að tjónið verði meira en í þessari fasteign, sem er þó heilmikið.“ Reykurinn er að sögn Péturs baneitraður, enda plastefni sem eru að brenna. Hann segir að fasteignin við Gagnheiði 17, þar sem Plastiðjan er til húsa, sé að mestu farin. „Hún er samtengd við Gagnheiði 19 og slökkvistarf hjá okkur miðaði mjög snemma að því að reyna að bjarga þeirri fasteign. Eins er Kökugerðin hérna á bak við, við höfðum auga með þeirri byggingu og það virðist vera að hún ætli að sleppa.“ Um sjötíu slökkviliðsmenn eru nú að störfum, að mati Péturs, frá Þorlákshöfn, Hveragerði, Árnesi, Reykholti og Selfossi. Slökkvistarf mun halda áfram langt fram á nótt. Vísir/ÓKÁPosted by Hafþór Sævarsson on Monday, 23 November 2015 Stórbruni í Plastiðjunni á Selfossi, hófst rétt fyrir kl. 22:00 í kvöld.Mikið lið er á staðnum og virðist eldurinn vera...Posted by Páll Jökull Pétursson on 23. nóvember 2015
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Fleiri fréttir Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Sjá meira