Reyndi að komast úr landi þrisvar sinnum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 21. janúar 2015 08:06 Maðurinn var handtekinn fyrr í mánuðinum þegar hann var að reyna að komast um borð í flutningaskip í Sundahöfn. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í gær úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að hælisleitandi, sem synjað hefur verið um hæli hér á landi, skuli sæta gæsluvarðhaldi þar til hann verði sendur aftur til Finnlands, þaðan sem hann kom, en þó eigi lengur en til föstudagsins 23. janúar. Forsaga málsins er sú að maðurinn gaf sig fram við lögreglu í ágúst síðastliðnum og óskaði eftir hæli hér. Áður en hann kom til Íslands hafði hann farið til Finnlands. Hælisbeiðni hans var ekki tekin til meðferðar hér og skyldi maðurinn því sendur aftur til Finnlands á grundvelli Dyflinnarreglunnar. Til að tryggja framkvæmd þeirrar ákvörðunar að maðurinn skyldi sendur úr landi var honum gert að tilkynna sig til lögreglunnar á Suðurnesjum tvisvar á hverjum sólarhring og halda sig í Reykjanesbæ. Maðurinn var svo handtekinn þann 5. janúar síðastliðinni, þar sem hann var að reyna að komast um borð í skip í Sundahöfn í Reykjavík. Hann hafði tvisvar áður reynt að komast um borð í fraktskip; í annað skiptið fannst hann í skipi sem komið var 180 sjómílur út af Reykjanesskaga. Að auki grunar lögregla hann um þjófnað og þá hefur hann komið við sögu í átökum milli hælisleitenda í Reykjanesbæ. Maðurinn hefur að mati lögreglu brotið gegn þeim skilyrðum sem honum hafi verið sett og hafi hann því verið handtekinn. Þá telji lögreglustjóri ástæðu til að ætla að maðurinn muni reyna að koma sér undan framkvæmd ákvörðunar Útlendingastofnunar um að vísa honum úr landi. Dóm Hæstaréttar má sjá hér.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Fleiri fréttir Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Of snemmt að kenna bikblæðingum um Átök á lokametrunum: Saka ríkisstjórn um að „slátra“ samgönguáætlun Sjá meira