Veruleg hækkun fasteignaverðs Stefán Árni Pálsson skrifar 21. janúar 2015 09:39 Verðbólga hefur verið mjög lítil á árinu og því hefur raunverð fasteigna hækkað umtalsvert. Vísir/Vilhelm
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði verulega í desember eða um 2%, þar af hækkaði fjölbýli um 1,1% og sérbýli um 5%. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Verðhækkanir á árinu 2014 voru miklar. Í heild hækkaði fasteignaverð um 8,5% frá fyrra ári, þar af hækkaði fjölbýli um 9,8% og sérbýli um 4,6%. Þetta eru mestu verðhækkanir milli ára sem sést hafa frá árinu 2007. Í þjóðhagsspá hagfræðideildar Landsbankans frá því í nóvember var því spáð að fasteignaverð myndi hækka um 8,5% á árinu 2014 þannig að sú spá hefur gengið vel eftir. Hagfræðideildin spáir 9,5% hækkun á þessu ári, 6,5% 2016 og 6,2% á árinu 2017. Verðbólga hefur verið mjög lítil á árinu og því hefur raunverð fasteigna hækkað umtalsvert. Raunverð alls húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 8% milli áranna 2013 og 2014. Í grein Landsbankans segir að mikil hækkun fasteignaverðs hafi jákvæð áhrif á efnahagsreikning heimilanna. Frá 2010 til 2013 hefur eigið fé heimila í fasteign hækkað um 51% að nafnvirði og um 33% að raunvirði. Það er athyglisvert að skoða þessa þróun í samhengi við þær almennu skuldaniðurfærslur sem fara fram þessa dagana. Ætla má að fasteignamat 2016 hækki töluvert þegar tölur um það verða birtar um mitt ár og verði verðbólga ennþá lág verða áhrifin á efnahagsreikning heimilanna áfram jákvæð.
Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Meira en nýtt útlit hjá Toyota í Kauptúni Samstarf Hekla innkallar 2.610 bíla Neytendur Payday fagnar stórum áfanga og horfir til gervigreindar Framúrskarandi fyrirtæki Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Lækka verð á þúsund vörum Neytendur Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Fleiri fréttir Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Sjá meira
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf