Spilarar leiksins þurfa að byggja upp The Inquisition til berjast gegn endalokum heimsins og koma jafnvægi á heiminn.
Þar sem allar helstu stofnanir ævintýraheimsins Thedas hafa brugðist er stofnaður svokallaður Inquisition, eða Rannsóknarréttur til að berjast gegn illum öflum heimsins. Spilarar DA:I bregða sér í hlutverk leiðtoga Rannsóknarréttsins og leiða baráttuna.
Tölvuleikir frábær vettvangur sögusköpunar
Saga leiksins er stórgóð og DA:I sýnir enn og aftur hve góður miðill tölvuleikir eru til að koma góðri sögu á framfæri. Þó um sé að ræða hlutverkaleik, er hann ófhefðbundinn að því leyti að nú fær leikmaður ekki færi á að stilla af styrkleika karaktersins. Með því að setja punkta í styrk eða gáfur hans. Hetjan er þróuð í samtölum við aðra karaktera leiksins.
Þá tekst framleiðendum leiksins að láta leikmönnum finnast þeir í raun stýra stórum her, með því að senda útsendara til að leysa hin ýmsu verkefni út um heiminn. Einnig hefur maður alltaf á tilfinningunni að ákvarðanir sem að teknar eru hafi mikil áhrif.
Netspilun DA:I virkar á þann veg að leikmenn eru settir í hlutverk útsendara Rannsóknarréttarins og eiga að leysa verkefni í sameiningu.
Of langt frá uppruna sínum
Fyrsti leikur seríunnar, Dragon Age: Origins er einhver besti töluleikur sem ég hef spilað og það er erfitt að bera DA:I ekki saman við hann. Vel tókst að gera ævintýraleik sem virkaði raunverulegur að vissu leyti. Karakterar leiksins voru engin ofurmenni og taktík spilaði stóran þátt í spilun leiksins. Þar skipti máli hvaða hæfileika beitt var, gegn hverjum og hvenær. Hægt var að sameina hæfileika, eins og með því að frysta óvini og brjóta þá með þungu höggi. Það er í raun enn hægt í Inquisition, en skiptir nánast engu máli.
Leikmenn geta notað hæfileika sína nánast án takmarkana og fylgir þeim mikil ljósasýning og taktar. Það er á köflum erfitt að sjá hvað er um að vera í bardögum vegna þessarar miklu ljósasýningar sem og að sjónarhorn leiksins getur verið til vandræða.
Mögulegt er að búa til sín eigin vopn og sínar eigin brynjur úr hráefnum sem safnað er í leiknum. Crafting kerfi DA:I er gott, en þó þykir mér vanta fjölbreytni. Þá verður þreytandi að stoppa og tína upp hverja einustu plöntu og alla þá málma sem á vegi manns verða.
Þar sem svæði leiksins eru eins stór og raun ber vitni er nú mögulegt að nota hesta til að ferðast um á styttri tíma en annars. Önnur nýjung sem lítur dagsins ljós er að lækningagaldrar hafa alfarið verið teknir úr leiknum og þess í stað er boðið upp á takmarkaðan fjölda svokallaðra Healing potions.

Saga leiksins er frábær og umfang leiksins veldur því að mikill tími fer í að spila hann. Þar að auki er endurspilunargildi hans mikið þar sem forvitnilegt er að spila hann sem galdramaður í eitt skipti og Qunari eða dvergur í annað skipti. Þá gefur netspilun leiknum aukið gildi. Allt í allt er ekki ólíklegt að þónokkrir vinnudagar fari í spilun DA:I.
