„Krafa um gjaldþrotaskipti setur alla starfsemi Valitor hf. í uppnám“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. janúar 2015 09:57 Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Valitors, og Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell. Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Valitors vildi gera Sveinn Andra Sveinsson lögmann Datacell persónulega ábyrgan fyrir tjóni sem Valitor yrði fyrir vegna kröfu um gjaldþrotaskipti. Þetta kemur fram í svarbréfi Sigurðar við greiðsluáskorun Datacell og Sunshine Press Productions til Valitors, útgefanda VISA á Íslandi, sem fréttastofan hefur undir höndum. Fyrirtækin tvö, Datacell og Sunshine Press Productions önnuðust söfnun styrktarfjár fyrir hönd uppljóstrunarsíðunnar Wikileaks. Fengu Sigurjón til að reikna út tjóniðMeð dómi Hæstaréttar frá 24. apríl 2013 var viðurkennt að það hafi verið ólögmæt ráðstöfun af hálfu Valitor að loka án fyrirvara greiðslugátt vegna söfnunar styrktarfjárins og fyrirtækinu var gert skylt, að viðlögðum dagsektum, að opna fyrir greiðslugáttina að nýju. Eins og Stöð 2 greindi frá á föstudag lögðu fyrirtækin tvö fram í Héraðsdómi Reykjaness kröfu um að Valitor yrði tekið til gjaldþrotaskipta vegna ógreiddrar skaðabótakröfu upp á 10,3 milljarða króna með vöxtum. Samhliða þessu hafa fyrirtækin höfðað skaðabótamál á hendur Valitor og verður fyrirtaka í því máli næsta fimmtudag. Þar er gerð krafa um rúmlega 8,1 milljarð króna. Til vara er gerð krafa um bætur samkvæmt niðurstöðu dómkvadds matsmanns en til þrautavara er farið fram á að bætur verði dæmdar að álitum. Fyrirtækin fengu Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóra Landsbankans til að reikna út ætlað tjón sitt vegna styrktarfjár sem ekki barst þegar greiðslugáttin var lokuð. Var það niðurstaða Sigurjóns að tjónið gæti verið á bilinu 1-8 milljarðar króna. Var í kjölfarið gerð ítrasta krafa ásamt vöxtum. Sveinn Andri Sveinsson ásamt Ólafi Vigni Sigurðssyni öðrum stofnanda Datacell.Hvöss bréfasamskipti Áður en krafa um gjaldþrotaskipti var lögð fram áttu Sigurður G. Guðjónsson og Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og Sunshine Press Productions, í bréfasamskiptum eftir að fyrirtækin tvö skoruðu á Valitor að greiða skaðabætur. Í einu svarbréfa Sigurðar til Sveins Andra segir hann orðrétt: „Verði af þeirri hótun þinni fyrir hönd umbjóðenda þinna að leggja fram kröfu um gjaldþrotskipti á hendur Valitor hf. munt þú persónulega og forsvarsmenn þeirra félaga og félögin sjálf verða gerðir ábyrgir in solidum fyrir öllu því tjóni sem Valitor hf. og hluthafa félagsins kunna að verða fyrir vegna þess að krafa um gjaldþrotaskipti er sett fram. Þér er væntanlega kunnugt um að Valitor hf. lýtur ströngu eftirliti opinberra aðila og rekur leyfisbundna starfsemi. Krafa um gjaldþrotaskipti setur alla starfsemi Valitor hf. í uppnám um leið og hún kemur fram. Krafa um gjaldþrotaskipti eykur ekki líkur umbjóðenda þinna á greiðslu meintrar bótakröfu, heldur kemur miklu frekar í veg fyrir greiðslu bóta, ef svo ólíklega vildi til að dómstólar féllust í óvissri framtíð á að umbjóðendur þínir ættu einhverja bótakröfu.“ Þrátt fyrir þetta sagði Sigurður í fréttum Stöðvar 2 að krafa um gjaldþrotaskipti hefði lítil áhrif á rekstur Valitors. Hann sagðist jafnframt ekki hafa nokkra trú á að neinn dómstóll tæki hana til greina.
Tengdar fréttir Wikileaks collectors demand bankruptcy for Valitor Two companies, handling the collection of the funding for Wikileaks, have demanded that Valitor, which handles VISA in Iceland, should be made bankrupt due to an unpaid claim for damages, amounting to about 10 billion kronas 18. janúar 2015 21:54 Hafa krafist þess að Valitor verði tekið til gjaldþrotaskipta Tvö fyrirtæki sem önnuðust söfnun styrktarfjár fyrir Wikileaks hafa krafist þess að Valitor, útgefandi VISA á Íslandi, verði tekið til gjaldþrotaskipta vegna ógreiddrar skaðabótakröfu sem er rúmlega 10 milljarðar króna með vöxtum. 16. janúar 2015 18:45 Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Wikileaks collectors demand bankruptcy for Valitor Two companies, handling the collection of the funding for Wikileaks, have demanded that Valitor, which handles VISA in Iceland, should be made bankrupt due to an unpaid claim for damages, amounting to about 10 billion kronas 18. janúar 2015 21:54
Hafa krafist þess að Valitor verði tekið til gjaldþrotaskipta Tvö fyrirtæki sem önnuðust söfnun styrktarfjár fyrir Wikileaks hafa krafist þess að Valitor, útgefandi VISA á Íslandi, verði tekið til gjaldþrotaskipta vegna ógreiddrar skaðabótakröfu sem er rúmlega 10 milljarðar króna með vöxtum. 16. janúar 2015 18:45