Viðskipti innlent

Tösku- og hanskabúðin flutt

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tösku og hanskabúðin hefur verið rekin í áratugi.
Tösku og hanskabúðin hefur verið rekin í áratugi. vísir/hörður
Tösku- og hanskabúðin er flutt á Laugaveg 103 eftir að hafa verið í 54 ár á Skólavörðustíg 7 í rúma hálfa öld. Þetta staðfestir Gréta Oddsdóttir, eigandi verslunarinnar, í samtali við mbl.is í kvöld.

Húsnæðið á Skólavörðustíg er í eigu félagsins Gamma ehf, sem rekur Hótel Óðinsvé, en leigusamningur Tösku- og hanskabúðarinnar var að renna út. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×