Launamunur kynjanna kann að vera að aukast Sæunn Gísladóttir skrifar 17. september 2015 12:53 Kynbundinn launamunur í hópi stjórnenda er núna 10,6%. Vísir/GETTY
Kynbundinn launamunur hjá stjórnendum innan VR eykst á milli ára. Aukagreiðslur karla í launahærri störfum hækka einnig meira en kvenna á milli ára. Þetta kemur fram í Launakönnun VR 2015. Niðurstöður launakönnunar VR 2015 gefa vísbendingar um að launamunur kynjanna innan félagsins kunni að vera að aukast, eftir að hafa dregist saman jafnt og þétt síðustu ár. Breytingin er innan vikmarka, 1,4% á meðan vikmörkin eru 1,6%, en erengu að síður umtalsverð og mesta aukning milli tveggja ára sem mælst hefur í launakönnun félagsins.Munur á heildarlaunum 14,2%Munur á heildarlaunum kynjanna er nú 14,2%, samanborið við 13,3% á síðasta ári. Árið 2000 var munurinn hins vegar 20,4%. Á fimmtán árum hefur munur á heildarlaunum kynjanna því dregist saman um tæpan þriðjung. Þegar rætt er um mun á heildarlaunum karla og kvenna er miðað við laun fyrir fullt starf. Ekki er tekið tillit til þeirra þátta sem hafa áhrif á launin, s.s. starfsins sjálfs eða atvinnugreinarinnar né fjölda vinnustunda þó að borin séu saman laun fyrir 100% starf. Vinnuvika karla í fullu starfi er lengri en kvenna eða 45,2 stundir á móti 42,4 stundum.Kyndbundinn launamunur 9,9%Kynbundinn launamunur innan VR er nú 9,9% samanborið við 8,5% árið 2014. Hann var 15,3% árið 2000. Á síðustu fimmtán árum hefur kynbundinn launamunur því einnig dregist saman um rúman þriðjung. Kynbundinn launamunur er sá munur sem er á heildarlaunum kynjanna eftir að tekið hefur verið tillit til áhrifaþátta á laun. Þessir þættir eru: aldur, starfsaldur, starfsstétt, atvinnugrein, menntun, mannaforráð, vinnutími og hvort viðkomandi vinni vaktavinnu. Áhrif vinnutíma vega þyngst þegar kemur að launamuni kynjanna. Nokkrir þættir geta skýrt þá breytingu milli ára sem tölurnar um launamuninn sýna nú. Þegar kynbundinn launamunur er skoðaður innan starfsgreina má sjá að hjá stjórnendum eykst hann marktækt á milli ára. Árið 2014 var u 2,5% munurinn á launum kvenna og karla í þessum launahæsta hópi félagsmanna VR jókst því marktækt á milli ára. Það dregur hins vegar marktækt úr kynbundnum launamun hjá skrifstofufólki, en þar eru fáir karlmenn og því sveiflur miklar á milli ára. Ávinningur kvenna af aukinni menntun er hins vegar meiri en karla. Hann virðist þó vera að minnka, árið 2009 var ávinningur kvenna umfram karla af framhaldsnámi í háskóla 16 prósentustig en er núna 7 prósentustig.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira