FA krefst upplýsinga um farmiðakaup ríkisins Stefán Árni Pálsson skrifar 18. febrúar 2015 11:45 Ólafur Þ. Stephensen – framkvæmdastjóri FA. vísir/anton/FA
Félag atvinnurekenda hefur sent fjármálaráðuneytinu bréf og farið fram á upplýsingar um viðskipti ríkisins við Icelandair á grundvelli samnings við fyrirtækið frá árinu 2009, sem komið hefur fram að sé í gildi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FA. Krafan er sett fram í framhaldi af gagnrýni FA og fleiri aðila á að farmiðakaup ríkisins skuli ekki hafa verið boðin út í meira en tvö og hálft ár.Sjá einnig: WOW skoðar stöðu sína gagnvart ríkinu Í janúar fór Kastljós RÚV fram á upplýsingar frá fjármálaráðuneytinu um það fyrir hversu stórar fjárhæðir ríkið skipti við innlend flugfélög. Samkvæmt svari ráðuneytisins gat það ekki fengið upplýsingar um hver hlutur einstakra fyrirtækja væri í þessum viðskiptum ríkisins. Ekki væri „greinanlegt í bókhaldi Fjársýslu ríkisins hver viðskipti við einstök félög eru árlega,” samkvæmt svari fjármálaráðuneytisins. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi benti í framhaldinu á að vel væri hægt að sjá hversu mikið væri greitt til einstakra fyrirtækja. „Já, það er hægt að sjá og taka saman lista yfir það hver heildarhluti viðskipta við einstaka fyrirtæki hafa verið hjá Fjársýslu ríkisins og í bókhaldi ríkisins þar með,“ sagði ríkisendurskoðandi í frétt RÚV. Í beiðni FA um upplýsingar eru færð rök fyrir því að hér sé um að ræða upplýsingar um ráðstöfun fjár skattgreiðenda og almenningur hafi hagsmuni af því að þær verði gerðar opinberar. Gengið er út frá því að til séu viðskiptayfirlit, sem gerð hafa verið á gildistíma samningsins.
Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira