Viðskipti innlent

Hluthafar fengu 840 milljónir

jón hákon halldórsson skrifar
Eggert Þór Kristófersson var ráðinn forstjóri N1 á þessu ári.
Eggert Þór Kristófersson var ráðinn forstjóri N1 á þessu ári. fréttablaðið/valli
Nýr forstjóri N1 segir alveg ljóst að fyrirtækið starfi ekki á vaxandi markaði, þótt mikill vöxtur sé í sölu flugvélaeldsneytis. Horfa þurfi í kostnað til þess að auka arðsemina.

„Það er ljóst að þetta er ekki vaxtabisness, fyrir utan að selja flugeldsneyti sem er mikill vöxtur í. Að öðru leyti er þetta frekar flatur markaður,“ sagði Eggert Þór Kristófersson á kauphallardegi Arion banka í gær.

Eggert sagði að vegna ferðamennsku væri rekstur félagsins breytilegur eftir árstíðum. „Annar og þriðji ársfjórðungur eru bestir þar sem þá er ferðamennska í hámarki. Þá nýtist kerfið okkar að fullu,“ sagði Eggert og vísaði í það að fyrirtækið er með þétt net eldsneytisstöðva víða um landið.

„Fjölgun ferðamanna hefur mjög góð áhrif. Frá því ég byrjaði höfum við séð bílaleigubílum fjölga mjög mikið. Þeir eru farnir að aka um landið allt árið, sem hefur mjög jákvæð áhrif,“ segir hann.

Arðgreiðsludagur N1 var í gær, en stjórn N1 lagði til við aðalfund félagsins að greiddar yrðu 840 milljónir króna til hluthafa í arð þetta árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×