Gámaþjónustan fær 4 Benz Finnur Thorlacius skrifar 8. desember 2015 13:36 Páll Halldór Halldórsson, Ágúst Guðmundsson, Benóný Ólafsson, Arngrímur Sverrisson, Jón Tausti Ólafsson og Gunnar Bragason voru ánægðir þegar gengið var frá kaupunum á fjórum Mercedes-Benz Antos vörubílum
Gámaþjónustan hefur fest kaup á fjórum Mercedes-Benz Antos vörubílum frá Bílaumboðinu Öskju. Bílarnir eru væntanlegir í byrjun næsta árs og verða kærkomin viðbót við bílaflota Gámaþjónustunnar sem telur tæplega 100 bíla og tæki. Gámaþjónustan er rótgróið fyrirtæki sem hóf starfsemi árið 1984 og hefur verið í fararbroddi í söfnun, flokkun og endurvinnslu úrgangs frá upphafi. Gámaþjónustan og dótturfélög þess eru með starfsemi víðsvegar um landið. Gámaþjónustan hefur byggt upp aðstöðu fyrir móttöku og vinnslu úrgangs- og endurvinnsluefna að Berghellu 1 í Hafnarfirði. Fyrirtækið rekur þar fullkominn jarðgerðarbúnað sem eykur möguleika sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana til endurnýtingar á lífrænum efnum. ,,Það er afar ánægjulegt að fá Gámaþjónustuna á ný í viðskipti til okkar. Þeir eiga nú þegar nokkra Mercedes-Benz bíla, allir síðan 2006-2008," segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent