Hækka verð í kjölfar nýgerðra kjarasamninga sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 15. júní 2015 14:00 Verð á kjöti, pítsum, salötum og fleiru hefur hækkað, meðal annars vegna nýgerðra kjarasamninga. vísir/vilhelm
Nokkuð hefur borið á því að birgjar hafi hækkað verð á vörum sínum í heildsölu. Verðhækkanirnar eru allt frá tveimur prósentum og upp í tíu prósent, meðal annars á kjöti, fisk, drykkjarvörum, sælgæti og fleiru. Neytendasamtökin tóku saman tölur yfir verðhækkanir sem hafa átt sér stað eftir 1. maí en þar er tekið fram að listinn sé ekki tæmandi. Líkt og sést á þessari mynd eru ýmsar skýringar fyrir verðhækkunum nefndar. Nýgerðir kjarasamningar eru þar nefndir ásamt verðhækkun á heimsmarkaði, hækkun á umbúðum, hráefni og fleiru. Aðrir nefna það að engar verðhækkanir hafi átt sér stað síðustu ár. Norðlenska hefur hækkað verð á kjöti um tvö til þrjú prósent og nefnir að kostnaðar- og launahækkanir sé ástæða hækkunarinnar. Nathan & Olsen hafa hækkað verð á Heinz tómatsósu um tíu prósent en jafnframt lækkað verð á einstökum vörum um tvö til fimm prósent. Þá hafa samlokur, pítsur, salöt og kjötbollur frá Mati og mörk hækkað um þrjú prósent en í einhverjum tilvikum um sex prósent. Nýgerðir kjarasamningar er ástæða þess.Á vef Neytendasamtakanna er minnt á að nú séu mjög eldfimir tímar þegar komi að verðlagsmálum. Ljóst sé að nýgerðir kjarasamningar séu kostnaðarauki fyrir fyrirtækin, en þó sé ekki sjálfgefið að þau velti þessum kostnaðarauka út í verðlagið.
Verkfall 2016 Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira