Skordýr og timbur í fiskafóðri framtíðar Svavar Hávarðsson skrifar 10. desember 2015 07:00 Fiskeldi vex ásmegin í fjörðum austanlands og á Vestfjörðum. vísir/gva
Framleiðsla á mjöli úr timburafurðum, lirfum skordýra og með ræktun örverulífmassa á brennisteinsvetni kom við sögu rannsókna og þróunarvinnu þekkingar- og rannsóknafyrirtækisins Matís. Hvatinn er alþjóðleg nauðsyn á að svara vexti fiskeldis á heimsvísu og minnka álag á fiskistofna við fiskimjölsframleiðslu. Matís vakti athygli á þessum rannsóknum nýverið í því samhengi að eftirspurn eftir fiskmeti eykst stöðugt í heiminum. Auka verður framboðið á eldisfiski til að halda framboði stöðugu og minnka álag á fiskistofna sem sögulega hafa verið nýttir til fiskimjölsframleiðslu, en nýting uppsjávarfisks til slíkrar framleiðslu er gagnrýnd á sama tíma og hann er nýttur til manneldis í auknum mæli. Fiskimjöl er enn ríkjandi próteingjafi í fiskafóðri en framleiðslan dregst saman af fyrrnefndum ástæðum. Ragnar Jóhannsson, verkefnisstjóri hjá Matís, hefur unnið að ýmsum verkefnum sem miða að því að nýta önnur hráefni en fiskimjöl í fiskeldisfóður. Matís og þróunarfélagið Sæbýli ehf. á Eyrarbakka hafa á síðustu árum náð góðum árangri í samstarfi við sænska nýsköpunarfyrirtækið SP Processum við að þróa fiskafóður úr aukaafurð sem fellur til við pappírsframleiðslu úr trjáviði. Þessi nýja tegund sem unnin er úr timburafurðum gæti í fyllingu tímans skipt miklu máli ef rækta má tré og vinna úr þeim hráefni í fiskafóður og gæti það dregið úr umhverfisálagi vegna fiskeldis í heiminum. Ragnar segir að um sé að ræða aðferð til að nýta sellulósa úr timbri [fjölsykra sem er eitt af næringarefnum í plöntum]. Þegar er efnið nýtt til lyfjaframleiðslu, til fatagerðar, í steypu og framleiðslu á etanóli. Í mjög einfaldaðri mynd eru niðurbrotssykrur sem eftir verða notaðar sem orkugjafi fyrir myglusveppi. Með gerjuninni fæst einfrumungur sem nota má við framleiðslu á fiskafóðri. Massinn er þurrkaður og blandað við önnur hráefni svo úr verði fiskeldisfóður. Þetta fóður hefur verið reynt í tilapíueldi með góðum árangri og er nú verið að þróa fóður fyrir bleikjueldi. Önnur aðferð sem hefur verið reynd í fóðurframleiðslu er að nota brennisteinsvetni frá Hellisheiðarvirkjun sem orkugjafa við ræktun örverulífmassa. Örverurnar vaxa hratt á brennisteinsvetninu, eru síðan þurrkaðar og bætt í fiskeldisfóður. Þessu verkefni var nýlega lokið eftir tveggja ára þróunarvinnu, en frekari rannsókna er þörf til að hámarka árangur. En þá er ekki allt talið. Skordýr eru önnur matarhola fyrir þá sem leita nýrra gjafa við framleiðslu fóðurs. Lirfur hermannaflugunnar eru til alvarlegrar skoðunar hér á landi en tilraunaræktun hófst hjá fyrirtækinu Víur á Bolungarvík haustið 2014. „Lirfurnar éta allt. Hér er horft til þess að nýta fiskúrgang, innyfli og slíkt. Notagildi þessa hráefnis er takmarkað og miklu af því hent enda ekki einfalt að búa til mjöl úr því beint. Lirfan hefur hátt prótíninnihald og hentar vel til að búa til dýrafóður,“ segir Ragnar en í Kanada hefur úrgangur frá stórmörkuðum verið notaður til að ala lirfurnar. „Við erum að henda frá okkur mörgu sem hægt er að nota, sem er vandamál og gengur gegn lögum. Heimurinn þarf prótein og mikið af því próteini sem verið er að nota í dag er sojaprótein. Það kemur að stórum hluta frá ræktun í Suður-Ameríku og skógur er ruddur í stórum stíl vegna þessarar framleiðslu,“ segir Ragnar og tæpir þar á máli málanna í dag sem eru loftslagsmálin, en varðveisla skóga og hlutur landbúnaðar í þeim vanda sem verið er að reyna að leysa hefur komið mjög við sögu á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París sem nú stendur yfir. „Svo varðar þetta líka fæðuöryggi heimsins. Sojamjöl er orðið mjög eftirsótt, t.d. í Kína og víðar. Evrópa notar þetta í stórum stíl án þess að hafa nokkra stjórn á þessari auðlind. Því er lögð áhersla á það í Evrópu að finna próteinauðlindir sem hægt er að nýta heima fyrir – og vera ekki jafn háð framleiðendum í fjarlægum löndum og nú er. Lögmálið er í þessu eins og víðar – ef þú getur haft eitthvað heimafengið þá er það kostur.“Framleiðsla Íslands vart merkjanleg Í skýrslu Alþjóðabankans, Fish to 2030: Prospects for Fisheries and Aquaculture, frá árinu 2014, er því spáð að tveir þriðju alls fiskmetis muni koma frá eldi árið 2030. Í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) frá 2014 segir að neysla á fiski í heiminum hafi aldrei verið meiri og um helmingur þeirra sjávarafurða sem neytt sé komi úr eldi. Í fólksfjöldaspám kemur fram að mannkyn muni ná níu milljörðum um miðja öldina, og mikilvægi fiskeldis og fóðurframleiðslu til að mæta þeim gríðarlega vexti í framleiðslu er mjög haldið á lofti í samhengi við fæðuöryggi heimsins. Íslendingar ala um 0,01% af heildarfiskeldisframleiðslu heimsins. Kína framleiðir um 60% heimsframleiðslunnar. Í Evrópu eru Norðmenn langstærstir en Síle framleiðir mest í Ameríku, samkvæmt Alþjóðabankanum.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Handtekinn eftir röð innbrota Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Erlent Fleiri fréttir Hættuástand skapist eftir fráhvarf 3G „Hugsið ykkur hvað þetta er nöturleg afmælisgjöf“ Hiti gæti náð tuttugu og fimm stigum um helgina Bruninn á Stuðlum kominn til ákærusviðs og tíu með réttarstöðu sakbornings Umferð eykst milli ára Handtekinn eftir röð innbrota Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sjá meira