Matur

Hvítt súkkulaði creme brulée

Sjónvarpskokkurinn Eyþór Rúnarsson gefur gómsætar uppskriftir á Stöð 2 fram að jólum.

Hvítt súkkulaði creme brulée

500 ml. rjómi

1 vanillustöng

150 g hvítt súkkulaði saxað

6 eggjarauður

50 g sykur

100 g hvítt súkkulaði

4 msk. hrásykur

Creme brulée skálar

Gasbrennari

Hitið rjóma og vanillustöngina upp að suðumarki og látið standa í pottinum í 5 mín. Þeytið saman eggjarauður og sykur í höndunum og hellið út í rjómablönduna. Eldið blönduna við vægan hita í ca 5 mín eða þar til að blandan fer að þykkna. Takið blönduna af hellunni og setjið hvíta súkkulaðið út í og hrærið varlega í á meðan það er að bráðna. Setjið vatn í djúpa bökunarplötu og setjið inn í 110 gráðu heitan ofninn og látið vatnið hitna í 10 mín. Hellið brulée blöndunni í brulée form og setjið þau á bökunarplötuna með vatninu. Mikilvægt er að vatnið nái upp að ¾ af bruléeskálinni svo að það eldist jafn. Bakið brulléeið í 60-90 mín og takið út úr ofninum og látð standa úti í 30 mín og setjið svo í ísskáp og kælið. Setjið 1 msk af hrásykri yfir hverja skál og brennið sykurinn með gasbrennara.

Möndlukökur

250 g mjúkt smjör

250 g sykur

175 g marsipan (smátt skorið)

200 g möndluflögur

50 g hveiti

5 egg

Appelsínubörkur af 1 appelsínu og safinn af 1/2 stk

Þeytið saman smjör og sykur þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið eggjunum út í og þeytið í 2 mín í viðbót. Bætið smátt skorna marsipaninu smám saman út í. Blandið afganginum af hráefnunum út í með sleif og setjið deigið í form. Bakið við 170 gráður í 30 mín eða þar til kakan er orðin gyllt og falleg.

Meðlæti

2 stk. appelsína

1 box hindber

1 box bláber

2 msk. flórsykur

Skerið börkinn utan af appelsínunum og skerið þær í fallega bita. Setjið appelsínurnar og berin ofan á möndlukökuna og stráið smá flórsykri yfir kökuna í gegnum fínt sigti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×