Innlent

Munar þúsundum króna á verði vinsælu bókanna

Snærós Sindradóttir skrifar
Bókaverslanir segjast ekki eiga auðvelt með að keppa við verð í Bónus vegna þess hve fáa titla Bónus er með um hver jól. Eftirsótt er af rithöfundum að koma bókum sínum í Bónus.
Bókaverslanir segjast ekki eiga auðvelt með að keppa við verð í Bónus vegna þess hve fáa titla Bónus er með um hver jól. Eftirsótt er af rithöfundum að koma bókum sínum í Bónus. VÍSIR/Pjetur
Jólabókaverslun nálgast hápunkt sinn nú þegar tvær vikur eru til jóla. Fréttablaðið bar saman verð þriggja verslana með bækur í Kringlunni en þær eiga það allar sameiginlegt að vera hluti af verslunarkeðjum með samtals 57 sölustaði um land allt.

Bónus bauð upp á lægsta verðið á öllum þeim titlum sem skoðaðir voru. Jafnan munaði 2.500 krónum á sömu bók í Bónus annars vegar og Eymundsson hins vegar en verslanirnar eru hlið við hlið í Kringlunni.

Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, vill koma því á framfæri að meðlimir í Vildarklúbbi Eymundsson, sem að hans sögn eru taldir í hundrað þúsund Íslendingum, fá lægra verð. Samkvæmt skilmálum klúbbsins er afsláttur fyrir vildar­klúbbsmeðlimi 5 prósent. Ofan á það bætast ýmis tilboð.

Sem dæmi má nefna að á fullu verði kostar Nautið eftir Stefán Mána 6.999 krónur en vildarklúbbsverð er 5.599 krónur þegar þetta er ritað. Í Bónus kostar bókin 4.579 krónur.

„Við erum bara mjög samkeppnis­fær. Penninn og Eymundsson eru með mjög mikið úrval af bókum. Við erum með allar bækur sem hafa komið út á Íslandi á þessu ári til sölu hjá okkur. Þar fyrir utan erum við með þúsundir titla af erlendum bókum sem eru bæði nýjar og gamlar. Þetta er svona grundvallaratriði í okkar rekstri,“ segir Ingimar.

Hann segir samkeppnina erfiða því Eymundsson hafi mun fleiri titla í boði en matvöruverslanirnar. „Það er bara nógu erfitt fyrir okkur að standa í því að vera með fimm til tíu þúsund titla til sölu fyrir jólin á móti fimmtíu titlum hjá Bónus og ætla að fylgja þeim í verði. Við erum með stanslaus tilboð á bókum, þau heita meðal annars vildartilboð fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Ingimar.

Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónussvísir/stefán
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss, segir lykilinn að baki bóksölu Bónuss vera lága álagningu og lítinn rekstrarkostnað í versluninni.

„Ég held að á sínum tíma hafi hugmyndafræðin verið að bjóða okkar viðskiptavinum bækur á betra verði en tíðkaðist. Það eru ekkert allir ánægðir með þetta. Sumir tala um að við séum að fleyta rjómann en við teljum á móti að bóksala hafi aukist eftir að aðgengi að bókum batnaði,“ segir Guðmundur.

Hann segir ekki rétt að Bónus leggi ekkert á bækur til þess eins að ginna fólk inn í verslunina til að kaupa matvöru. „Við auglýsum aldrei bækur. Við kaupum mikið af bókum og erum að skila ávinningi af magnkaupum til okkar viðskiptavina. Bónus leggur lítið á, það er bara þannig.“

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru verslanir að fá misjöfn kjör frá bókaforlögunum. Tómas Hermannsson, framkvæmdastjóri Sagna útgáfu, segist ekki fylgjast grannt með verði á bókum í jólabókaflóðinu. „Ég vildi óska að bækur væru á sem bestu verði um allt. Bara guð blessi samkeppni, það er mitt svar.“ snaeros@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×