Litabækur seljast fyrir fimmtíu milljónir Sæunn Gísladóttir skrifar 11. desember 2015 09:51 Samtals nemur sala á þremur vinsælum litabókum 45,4 milljónum króna á árinu. Vísis/Anton
Litabækur fyrir fullorðna voru kynntar í búðum hér á landi á árinu, þrjár vinsælar bækur hafa selst fyrir tæplega fimmtíu milljónir á árinu. Forlagið hefur aðeins gefið út eina litabók, Litabókina hans Nóa, sem selst hefur í þrjú þúsund eintökum að sögn Egils Arnar Jóhannssonar, framkvæmdastjóra Forlagsins. Bókin kostar 2.290 krónur hjá Forlaginu. Sé miðað við það verð hefur bókin selst fyrir 6,87 milljónir á árinu. Egill Örn segir að fleiri litabækur séu á teikniborðinu. „Þetta litabókaæði byrjaði úti í heimi fyrir um það bil ári. Það er búið að leggja bókamarkaðinn í heiminum að nokkru leyti undir sig og dómínera metsölulista úti um allan heim. Ísland er þar engin undantekning þó svo að við höfum verið aðeins seinna á ferðinni en í nágrannalöndunum,“ segir Egill Örn.Leynigarðurinn og Týnda hafið hafa selst í 11 þúsund eintökum. Fréttablaðið/AntonPétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Bjarti, segir að samanlagt hafi Leynigarðurinn og Týnda hafið selst í 11 þúsund eintökum. Leynigarðurinn, sem gefin var út í júní, hefur selst í 8.000 eintökum að sögn útgefanda, hún kostar 3.500 krónur og hefur því selst fyrir 28 milljónir. Týnda hafið hefur selst í 3.000 eintökum síðan hún kom út í byrjun nóvember. Bókin kostar 3.500 krónur og hefur því selst fyrir 10,5 milljónir. Samtals nemur sala á litabókunum þremur því 45,4 milljónum króna.
Mest lesið Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Origo kaupir Maven Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum Sjá meira