Körfubolti

Jón Arnór í tólfta sinn og Helena í ellefta sinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir.
Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir. Mynd/KKÍ
Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir hafa verið valin körfuknattleiksmaður og körfuknattleikskona ársins 2015 af KKÍ. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Körfuknattleiksambandi Íslands.

 

Þetta er í tólfta sinn sem Jón Arnór er valinn en Helena hefur nú alls ellefu sinnum verð valin og það ellefu sinnum í röð. Helena er 27 ára gömul og Jón Arnór 33 ára. Körfuknattleikskona og maður ársins 2015 voru valin af stjórn, starfsmönnum, afreksnefnd KKÍ og landsliðþjálfurum (yngri landsliða og A-landsliða).

 

Körfuknattleikskona ársins 2015

1.sæti · Helena Sverrisdóttir

2.sæti · Gunnhildur Gunnarsdóttir

3.sæti · Pálína Gunnlaugsdóttir

 

Aðrar sem fengu atkvæði í stafrófsröð:

Bryndís Guðmundsdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir, Margrét Rósa Hálfdánardóttir, Sara Rún Hinriksdóttir og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir.

 

Körfuknattleiksmaður ársins 2015

1. sæti · Jón Arnór Stefánsson

2. sæti · Hörður Axel Vilhjálmsson

3. sæti · Hlynur Bæringsson

 

Aðrir sem fengu atkvæði í stafrófsröð:

Haukur Helgi Pálsson, Jakob Örn Sigurðarson, Martin Hermannsson og Pavel Ermolinskji.

 

Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998:

1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir

1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð

2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir

2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir

2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir

2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir

2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir

2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir

2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2008: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2009: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2010: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2011: Jakob Örn Sigurðarson og Helena Sverrisdóttir

2012: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2013: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2014: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

2015: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir

 

Oftast valin Körfuboltamaður ársins:*

12 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007, 2008, 2009, 2010, 2012, 2013, 2014, 2015)

11 Helena Sverrisdóttir (2005, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010, 2011, 2012, 2013, 2014, 2015)

4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993)

3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977)

2 Jón Sigurðsson (1976, 1978)

2 Valur Ingimundarson (1984, 1988)

2 Guðmundur Bragason (1991, 1996)

2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998)

2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004)

1 Jakob Örn Sigurðarson (2011)

 

* Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuknattleiksmaður og Körfuknattleikskona ársins.

Mynd/KKÍ
Körfuknattleikskona ársins 2015 - þrjár efstu

Helena Sverrisdóttir · Haukar


Helena Sverrisdóttir er körfuknattleikskona ársins 2015 með fullt hús stiga. Þetta er í 11. sinn sem Helena er kjörin körfuknattleikskona ársins en hún hefur haldið þessum titli núna í 11 ár samfellt. Helena lék á fyrri hluta ársins með CCC Polkowise í Póllandi og samdi við Hauka fyrir upphaf þessa tímabils. Helena er lykilleikmaður og fyrirliði íslenska landsliðsins sem leikur í undankeppni EM kvenna um þessar mundir og eftir tvo leiki leiðir hún liðið í skoruðum stigum, fráköstum og stoðsendingum. Að auki leiðir hún Domino´s deildina hér í stoðsendingum og er efst Íslendinga í tölfræðiflokkunum fráköst, stig og framlag.

 

Gunnhildur Gunnarsdóttir · Snæfell

Gunnhildur er orðin ein af burðarásum íslenska liðsins og með óbilandi baráttu og dugnaði er hún liðum sínum mjög mikilvæg. Gunnhildur var einn af lykilmönnum Snæfells sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og var ofarlega á tölfræðilistum deildarinnar á síðastliðnu ári sem og í ár. Á þessu tímabili hefur Gunnhildur verið óheppin með meiðsli en leikið mjög vel í þeim leikjum sem hún hefur leikið með landsliðinu og Snæfell það sem af er árinu. Gunnhildur hefur leikið alla landsleiki íslenska liðsins frá árinu 2012, eða 19 leiki samtals.

 

Pálína Gunnlaugsdóttir · Haukar

Pálína lék með Grindavík á síðasta tímabili og skipti í Hauka fyrir þetta tímabil. Hún hefur leikið mjög vel það sem af er ári og er ofarlega í mörgum tölfræðiþáttum með félagsliði sínu Haukum í deildinni. Með landsliðinu er Pálína ein af reyndari leikmönnum liðsins og einn af lykilleikmönnum liðsins sem nú leikur í undankeppni EM 2017. 

Mynd/KKÍ
Körfuknattleiksmaður ársins 2015 - efstu þrír

Jón Arnór Stefánsson · Valencia, Spánn

Jón Arnór Stefánsson er körfuknattleiksmaður ársins 2014. Jón hefur þá hlotið nafnbótina alls 12 sinnum frá því að hann hlaut hana fyrst árið 2002. Jón Arnór skipti frá Unicaja Malaga í spænsku úrvalsdeildinni yfir til Valencia í sömu deild s.l. sumar, sem óhætt er að segja að sé besta deild Evrópu. Hefur lið Valencia verið eitt af stóru liðunum í deildinni undanfarin ár.

 

Jón Arnór var lykilleikmaður íslenska landsliðsins þegar liðið tryggði sér þátttökurétt á EM í körfuknattleik, EuroBasket 2015, í fyrsta sinn á síðasta ári. Í ár var svo komið að stóru stundinni þegar íslenska liðið hélt til Berlínar og lék í B-riðli á mótinu gegn mörgum af sterkustu þjóðum álfunnar. Jón Arnór var lykilleikmaður liðsins og leiddi liðið í skoruðum stigum, stoðsendingum og var einn af betri leikmönnum liðsins. Að móti loknum gerði Jón Arnór samning eins og áður segir við Valencia og hefur spilað stórt hlutverk í jöfnu liði og var liðið taplaust í upphafi desembermánaðar í öllum keppnum, bæði í spænsku deildinni og Evrópukeppninni, og er liðið á toppi spænsku deildarinnar um þessar mundir.

 

Hörður Axel Vilhjálmsson · ČEZ Nymburk, Tékkland

Hörður Axel átti frábært ár í Þýskalandi og með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í Berlín, þar sem hann var ábyrgur fyrir boltanum í upphafi sóknar og skilaði varnarhlutverki sínu frábærlega gegn öflugum andstæðingum mótherjanna. Frammistaða Harðar varð til þess að hann fékk samning hjá liði í efstu deild á Grikklandi. Eftir stutt stopp þar var hann svo keyptur til Tékklands þar sem hann leikur í efstu deild sem og í VTB deildinni og FIBA Europe Cup. Hörður Axel hefur á undanförnum árum orðið einn af lykilleikmönnum landsliðsins og framtíðarleikmaður þess.

 

Hlynur Bæringsson · Sundsvall Dragons, Svíþjóð

Hlynur er fyrirliði íslenska karlalandsliðsins og var í lykilhlutverki á Evrópumótinu í sumar þar sem hann lék flestar mínútur íslensku leikmannanna auk þess sem hann tók flest fráköst og stal flestum boltum fyrir Ísland. Hlynur var að spila gegn mun hærri mönnum inni í teignum og stóð sig frábærlega gegn mörgum að sterkustu leikmönnum Evrópu á mótinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×