Góð þátttaka í bréfamaraþoni Stefán Ó. Jónsson skrifar 12. desember 2015 23:43 Bubbi lék fyrir fullu húsi í höfuðstöðvum Amnesty að Þingholtsstræti amnesty
Bubbi söng valinkunn lög fyrir fullu húsi á Bréfamaraþoni Íslandsdeildar Amnesty International í dag. Fram kemur í tilkynningu frá samtökunum að hátt í annað hundrað manns lögðu leið sína á skrifstofu samtakanna, hlýddu á baráttusöngva Bubba og skrifuðu bréf til stjórnvalda um víða veröld sem brjóta gróflega á mannréttindum borgara sinna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bubbi Morthens tileinkar söng sinn mannréttindabaráttu Amnesty International en árið 1987 gaf hann út metsöluplötuna Dögun sem hann tileinkaði samtökunum í tilefni af 40 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna. Bréfamaraþon Amnesty International er einn stærsti mannréttindaviðburður heims sem fram fer árlega í kringum 10. desember á alþjóðlegum mannréttindadegi. Þá koma hundruð þúsunda saman og skrifa bréf til stjórnvalda sem brjóta mannréttindi og krefja stjórnvöld um umbætur. Margir senda einnig stuðningskveðjur til þolenda brotanna. „Kveðjurnar veita þolendum mannréttindabrota styrk og vissu um að umheimurinn hafi ekki gleymt þeim,“ segir í tilkynningunni.Hér faðmar Bubbi framkvæmdastjóra Amnesty á Íslandi.12 mál í árÁ bréfamaraþoni samtakanna í ár er hægt bregðast við vegna 12 mála sem samtökin telja að þurfi á athygli að halda. Meðal þeirra er mál Albert Woodfox sem hefur setið í fangelsi í Louisiana í Bandaríkjunum í 43 ár, þar af 40 ár í einangrun. „Engar áþreifanlegar sannanir tengja Woodfox við glæpinn sem hann er ákærður fyrir,“ segir í bréfi Amnesty. Búrkína Fasó er einnig í brennidepli bréfamaraþonsins í ár en þar eru þúsundir ungra stúlkna þvingaðar í hjónaband á hverju ári. Í El Salvador er einnig brotið gróflega á mannréttindum kvenna og stúlkna þar sem bann ríkir við fóstureyðingum í landinu. Mál Teodora del Carmen verður sérstaklega tekið fyrir en hún fæddi andvana barn árið 2007 og var í kjölfarið handtekin og dæmd í 30 ára fangelsi fyrir morð að yfirlögðu ráði. Allir þessir þolendur mannréttindabrota þurfa sárlega á aðgerðum Íslendinga að halda. „Það kann að vera auðvelt fyrir stjórnvöld að hunsa eitt bréf en þegar milljónir slíkra bréfa berast er erfitt að líta undan. Bréfin bera árangur. Bréfin bjarga lífi“
Mest lesið Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent „Mistök að fela honum forystu“ Innlent „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Innlent Fleiri fréttir Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða „Mistök að fela honum forystu“ „Ég hef mikið til verið hér á eigin spýtur“ Uppselt á opnunarmyndina í tveimur sölum Mundaði hníf og skotinn með rafbyssu í Hagkaup á Eiðistorgi Lögregluembættum fækkað verulega Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Mikill vatnsstrókur í Miðfirði Sex skriðuviðvaranir í gildi „Þetta var rétt ákvörðun“ Orðin lýsi skeytingarleysi ríkisstjórnarinnar Sjá meira