Glamour

Fara strákarnir að stelast í snyrtibudduna?

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Kóreubúar eru mjög þekktir í snyrtivöruheiminum fyrir að vera framarlega í „skincare“ og hafa fjölmargar vörur frá þeim verið teknar upp af snyrtivörurisum í vestrænum löndum, þar á meðal hið sívinsæla BB krem.

Nú hafa hisvegar snyrtivörur fyrir karlmenn rokið upp í vinsældum þar í landi og hefur sala þeirra aukist um 1 billjón dollara á ári.

Hver svo sem ástæðan er þá eru nú talsvert meiri líkur á að förðunarvörur fyrir karlmenn muni koma, í meiri mæli, á markað í vestrænum löndum. Erum við að fara að sjá strákana gramsa í snyrtibuddunni okkar á morgnanna í leit að augnblýantinum í þeim tilgangi að setja á sig „guyliner“ í anda Johnny Depp?






×