Fjármálaráðuneytið var mesti skólinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 2. desember 2015 07:00 Kolbeinn Marteinsson lauk prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann fór svo til Skotlands þar sem hann lærði almannatengsl. Hann verður framkvæmdastjóri Athygli almannatengsla frá áramótum. Fréttablaðið/GVA
Kolbeinn Marteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Athygli almannatengsla og útgáfu. Hann tekur við starfinu í byrjun janúar. Kolbeinn hefur starfað sem markaðs- og kynningarstjóri menntavísindasviðs Háskóla Íslands undanfarin tvö ár, auk þess sem hann hefur sinnt stundakennslu við HÍ. „Þar hef ég verið að takast á við þær skemmtilegu áskoranir að fjölga nemendum í kennara- og uppeldisfræðinámi,“ segir Kolbeinn. Hann segir að þetta hafi tekist ágætlega og til marks um það sé að nemendum hafi fjölgað um 20 prósent á síðasta ári frá árinu þar á undan. Kolbeinn hefur því fengist við markaðsstörf fyrir Háskóla Íslands en hann sinnti einnig öðrum störfum, eins og stjórnsýslustörfum. Kolbeinn segir að auk þess sem hann muni sjá um daglegan rekstur hjá Athygli verði hann í ráðgjafarstörfum og fleiru. „En á eftir að móta það þegar ég byrja,“ segir hann. Athygli er rótgróið fyrirtæki, hefur starfað allt frá árinu 1989. Ellefu starfsmenn munu starfa með Kolbeini hjá Athygli og er fyrirtækið með skrifstofu á Akureyri og í Reykjavík. Kolbeinn hefur komið víða við í atvinnulífinu, en hann var meðal annars aðstoðarmaður ráðherra um skeið. „Katrín Júlíusdóttir, sem er gömul vinkona mín, hringdi í mig 2011 og spurði mig hvort ég vildi koma með sér í iðnaðarráðuneytið. Það var ótrúlega skemmtilegur tími og fróðlegur,“ segir Kolbeinn. Þegar Katrín varð fjármálaráðherra fór Kolbeinn með henni í fjármálaráðuneytið. Hann segir að það hafi verið einn mesti skóli sem hann hafi komist í. Hann hafi fengið áhuga á ríkisfjármálum eftir á. „Ég til dæmis les fjárlögin þegar þau koma út, renni yfir þau. Og ég gleðst mjög mikið yfir batnandi hag ríkisins,“ segir Kolbeinn, sem bætir því við að hann ætli ekki að hafa frekari afskipti af stjórnmálum. En ríkisfjármál eru ekki eina áhugamál Kolbeins. Á vorin, frá apríl og fram í október, veiðir hann á flugu. „Það er áhugamál sem hefur vaxið og mér þykir alltaf vænna og vænna um,“ segir Kolbeinn. Hann reynir því að feta stigið milli atvinnu, fjölskyldu og þessa áhugamáls sem hann brennur fyrir. „Ég veiði í raun alla fiska í straumvatni; lax, sjóbirting, sjóbleikju, staðbundinn urriða. Ég veiði bara allt sem ég kemst í,“ segir Kolbeinn. Að auki hefur Kolbeinn æft karate undanfarin þrjú ár hjá Karatefélagi Reykjavíkur. Hann mun brátt taka fjórða kyu og segir mögulegt að hann verði kominn með svarta beltið eftir tvö ár, ef vel gengur. Kolbeinn lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann útskrifaðist svo með meistarapróf í almannatengslum frá University of Stirling í Skotlandi árið 2004. Hann er fjölskyldumaður og kvæntur Hörpu Katrínu Gísladóttur sálfræðingi. Saman eiga þau þrjú börn.
Mest lesið Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Erlendu ráðgjafarnir fengu mun hærri laun Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Lindex á Íslandi lækkar verð um allt að 22 prósent Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira