Lögregla kölluð til eftir að maður braut rúður í strætisvagni í miðbænum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 4. desember 2015 11:33 "Mönnum bregður eðlilega við svona hluti í friðsælu þjóðfélagi eins og Ísland á að vera,“ segir Jóhannes. vísir/gva
Engan sakaði þegar karlmaður gekk berserksgang í miðbænum á miðvikudag og braut tvær rúður í strætisvagni. Talið er líklegt að maðurinn hafi verið vopnaður og er málið nú í rannsókn lögreglu. Vagnstjóranum hefur verið boðin áfallahjálp. „Þetta gerðist rétt hjá Ráðhúsinu fyrir tveimur kvöldum. Maðurinn barði í strætisvagninn að utan og braut tvær rúður. Hann hljóp svo bara í burtu og lögregla var kölluð til, en það náðist ekki í manninn,“ segir Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. Hann segir litlar upplýsingar liggja fyrir um málið að svo stöddu en að líklega hafi maðurinn notað einhvers konar áhald eða vopn til að brjóta rúður vagnsins. „Það er í raun ekki erfitt að brjóta þessar rúður ef þú ert með eitthvað í höndunum, eitthvað oddhvasst eða þvíumlíkt. Þetta eru svokallaðar öryggisrúður sem á að vera hægt að brjóta.“ Jóhannes segir manninum skiljanlega brugðið. „Þegar svona kemur upp, sem er þó ekki algengt, þá er vagnstjóri tekinn af vaktinni og boðin áfallahjálp. Mönnum bregður eðlilega við svona hluti í friðsælu þjóðfélagi eins og Ísland á að vera,“ segir hann. Þá bindur hann vonir við að málið leysist fljótt. „Við auðvitað vonumst til að lögregla bregðist fljótt við svo fólk upplifi þetta kerfi sem öruggt og gott. Það skiptir okkur öllu máli.“
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Sjá meira