Ráðherrar funduðu um málefni ríkisfjölmiðla Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. desember 2015 19:13 Illugi Gunnarsson og Bertel Haarder í Kaupmannahöfn í dag mynd/MMR
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra átti í dag fund með Bertel Haarder, menningar- og kirkjumálaráðherra Danmerkur. Fundurinn var haldinn í Menningarmálaráðuneytinu í Kaupmannahöfn en í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir að á fundi ráðherranna hafi verið rædd málefni ríkisfjölmiðla í löndunum tveimur. Á fundinum kom meðal annars fram að starfsumhverfi ríkisfjölmiðla hefur á undanförnum árum breyst mikið og fyrirsjáanlegt er að á næstu misserum og árum muni sú þróun halda áfram á auknum hraða. „Nú þegar hafa þessar breytingar getið af sér breytt neyslumynstur almennings, einkum hvað varðar sjónvarpsáhorf. Vaxandi krafa er um sveigjanlegt aðgengi að öllu sjónvarpsefni, framboð á efni hefur aukist gríðarlega m.a. með tilkomu nýrra fyrirtækja á sjónvarpsmarkaði og alþjóðlegar efnisveitur eru óðum að hasla sér völl. Í ljósi þessarar þróunar hefur mikilvægi innlendrar efnisframleiðslu vaxið mjög,“ segir í tilkynningunni. Ráðherrarnir hafi þá einnig rætt um uppbyggingu þjónustusamninga við ríkisfjölmiðla, einkum um þann þátt er snýr að skyldum ríkisfjölmiðlanna til að nota hluta þeirra fjármuna sem þeim hefur verið úthlutað til kaupa á efni af innlendum framleiðendum. Jafnframt ræddu ráðherrarnir mikilvægi þess að auka framleiðslu á vönduðu barna- og unglingaefni ásamt því að tryggja þurfi með sem bestum hætti grundvöll lýðræðislegrar umfjöllunar.
Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Sjá meira