Vilja fjóra milljarða úr skattaeftirliti Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 9. desember 2015 07:00 Forsvarsmenn stjórnarandstöðuflokkanna segja flokkana afar samhenta. Fréttablaðið/Stefán
Stjórnarandstaðan kynnti sameiginlegar breytingartillögur sínar að fjárlagafrumvarpinu á blaðamannafundi í Iðnó í gær. Í tillögunum er lagt til umtalsvert aukafjármagn í Landspítalann, afturvirk leiðrétting í kjaramálum eldri borgara og öryrkja ásamt því að komið verði til móts við barnafjölskyldur með hækkun á þaki fæðingarorlofs. Í tillögunum er lögð til um 16 milljarða útgjaldaaukning auk 17 milljarða tekjuöflunar byggðrar á auknum veiðigjöldum, orkuskatti, efldu skattaeftirliti og arði frá bönkunum. Í tillögunum er meðal annars lagt til að nærri þrír milljarðar verði settir aukalega í starfsemi Landspítalans, 800 milljónir í framhalds- og háskóla landsins, 5,3 milljarðar í leiðréttingu til aldraðra og öryrkja og 4,1 milljarður í barnabætur og fæðingarorlof.Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir alla geta tengt við stór og smá réttlætismál sem má finna í tillögunum. „Ríkisstjórnin hefur verið að eyðileggja öll stoðkerfi sem meðaltekjufólk hefur reitt sig á hvort sem það eru barnabætur, vaxtabætur eða fæðingarorlof. Þau hafa breytt þessu í framfærslukerfi fyrir lágtekjufólk. Það eru skelfileg skilaboð til ungs fólks á Íslandi.“Einnig er lagt til að meiri peningar verði settir í loftslagsmál og vernd íslenskrar tungu. Athygli vekur að í tillögunum er stóraukið fjármagn lagt til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir að eftir kvenfrelsisbyltingarnar á internetinu og í samfélaginu á árinu sé brýn þörf að setja meira í málaflokkinn. „Þessar byltingar hafa auðvitað kallað fram viðbrögð í samfélaginu og við höfum haldið því fram að um raunverulegar samfélagslegar hamfarir sé að ræða þegar svo mörg fórnarlömb tala og það er okkar skylda að bregðast við þegar það birtist okkur svona skýrt,“ segir Svandís.Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, segir nýju tillögurnar gera ráð fyrir meiri innviðafjárfestingu, að Græna hagkerfið verði setta aftur á laggirnar, auk þess sem meira fé verði sett í að hjálpa innflytjendum að fóta sig á Íslandi. „Þetta skiptir miklu máli. Um 7,96 prósent þeirra sem búa á Íslandi, því er mikilvægt að þau fái að fóta sig í íslensku samfélagi og verða hluti af okkur,“ segir Óttarr.Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að Píratar hafi meðal annars lagt áherslu á aukin útgjöld í umboðsmann Alþingis og fangelsismál. „Við erum mikið að hugsa út í þennan málaflokk sem er oftast skilinn eftir, nærri alltaf, og það eru fangelsismálin. Sá málaflokkur er hreinlega í molum, það verður að segjast eins og er og hann mun ekki batna nema að það verði veruleg innspýting í fjárlögum.“Þá var rauði þráður blaðamannafundarins sá að með tillögunum væri stjórnarandstaðan að sýna fram á að skýr valkostur er til við ríkisstjórnarflokkana. Allir viðmælendur Fréttablaðsins voru sammála um að flokkarnir ættu auðvelt með samvinnu og væru samhuga í megindráttum. „Af þessari samvinnu að dæma er það ljóst að við ættum afar auðvelt með að starfa saman í ríkisstjórn,“ sagði Árni Páll.Þá felldi meirihluti Alþingis breytingartillögu stjórnarandstöðuflokkanna á fjárlögum um bætt kjör aldraðra og eldri borgara í gær. Tillagan fól í sér að aldraðir og öryrkjar fengju afturvirkar kjarabætir til 1. maí 2015 líkt og fjölmargar stéttir hafi fengið, þar á meðal þingmenn og ráðherrar.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira