Glamour

"Mér finnst þetta óþægilegt"

Ritstjórn skrifar
Lily-Rose Depp og Karl Lagerfeld.
Lily-Rose Depp og Karl Lagerfeld. Glamour/Getty
Leikarinn Johnny Depp opnar sig um frægð dóttur hans, Lily-Rose Depp, í viðtali við Daily Mail

en það er óhætt að segja að Lily-Rose sé ný stjarna í tískuheiminum.

Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára gömul er Lily-Rose andlit Chanel og hefur gengið tískupallana fyrir merkið sem og að hafa leikið í nokkrum myndum. Depp segir að frægðarstjarna dóttur sinnar hafi risið svo hratt undanfarið að hann geti varla fylgst með. 

"Það sem er að gerast fyrir Lily-Rose núna er eitthvað sem ég átti ekki von á að mundi gerast svona snemma, það er víst. Hún var uppgötvuð af Karl Lagerfeld, sem er tilviljun því mamma hennar (innsk. bl. Vanessa Paradis)var á sama aldri þegar hann uppgötvaði hana - og þegar ég sé hana málaða í fullum skrúða þá finnst mér það óþægilegt, því hún er mjög falleg stelpa og þetta er að gerast mjög hratt."

Depp segir að hann og dóttir hans séu mjög góðir vinir og að hann styðji hana fullkomlega í því sem hún er að gera. "Að hún starfi sem fyrirsæta eða leikkona var aldrei það sem ég sá fyrir mér að hún mundi gera en það er það sem hún elskar að gera, hún er góð í því svo hvað get ég sagt."

blonde

A photo posted by Lily-Rose Depp (@lilyrose_depp) on






×