Ítalskir útgefendur kepptust um íslenska vínbók Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 26. nóvember 2015 08:00 Sigga Björg með eintak af bókinni en sýning á myndunum sem hana prýða verður opnuð í Hverfisgalleríi í dag. Vísir/Stefán
Við skiptum bara víntegundunum niður á okkur og svo sátum við bara hver í sínu horninu og teiknuðum,“ segir myndlistarkonan Sigga Björg Sigþórsdóttir sem ásamt þeim Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur og Rán Flygenring sá um að myndskreyta bókina Vín – Umhverfis jörðina á 110 tegundum sem kom út á dögunum. Líkt og gefur að skilja er úrval vína í bókinni alþjóðlegt og af þeim sökum er komin upp sú staða hjá Crymogea sem gefur bókina út að bitist er um hina íslensku Vín-bók hjá ítölskum útgefendum sem áhugavert er í ljósi vínmenningar ítölsku þjóðarinnar. Viðræður um útgáfuna eru nú langt komnar og því ætti bókin að líta dagsins ljós í bókabúðum á Ítalíu innan skamms. Myndskreytingarnar í bókinni eru þó ekki af hefðbundnu tagi og er flöskumiðum ekki gert hátt undir höfði heldur eru víntegundir alls staðar að úr heiminum teiknaðar líkt og persónur eða einstaka dráttum í sögu þeirra gefin sérstök einkenni. Bókin er skrifuð af Steingrími Sigurgeirssyni og notfærðu þær Sigga, Rán og Lóa sér lýsingar hans.Ein af myndum Siggu sem prýða bókina.„Við lásum bara textana hans Steingríms ítarlega og myndskreyttum út frá því. Myndirnar eiga ekki bara að sýna hvað er á textanum heldur bæta við hann og við fórum aðeins út fyrir hefðbundna myndskreytingarhugsun,“ segir Sigga glöð í bragði en þær Lóa tóku fyrir 37 tegundir af víni og Rán 35 en hún er listrænn stjórnandi bókarinnar og sá um útlit hennar ásamt grafíska hönnuðinum Herði Lárussyni. Sigga segir að verkefnið hafi vissulega verið lærdómsríkt og hún viti nú talsvert meira um vín en það hún vissi áður en lagst var í verkefnið. „Þetta er náttúrulega rosalega mikið af myndum, við hefðum nú kannski ekki komist langt með þetta ef við hefðum drukkið þau öll,“ segir hún og skellir upp úr þegar hún er spurð að því hvort hún hafi ekki fengið að væta kverkarnar með þeim vínum sem hún tók fyrir.
Menning Mest lesið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Gagnrýni Anthony Head er látinn Lífið „Aldrei of seint að gera hlutina“ Lífið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Bíó og sjónvarp Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Menning Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Lífið samstarf Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Fleiri fréttir Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Sjá meira