Pópúlískir flokkar varnarviðbrögð minnihlutans Una Sighvatsdóttir skrifar 25. nóvember 2015 19:20
Stjórnmálaflokkar sem vilja beita sér gegn fjölmenningarsamfélaginu hafa sótt í sig veðrið á Norðurlöndum og mælast nú alls staðar með yfir 10% fylgi. Þetta þarf þó ekki að þýða að umburðarlyndi fari minnkandi. „Ég held að menn séu að ýkja verulega að viðhorf af þessu tagi séu að styrkjast á Norðurlöndum og í Evrópu. Það er birtingarmyndin sem er að breytast, ekki viðhorfin, að mínu mati," sagði Ólafur Þ. Harðarson í samtali við fréttstofu að loknum fundi í Háskóla Íslands í dag undir yfirskriftinni Fjölmenning, stjórnmál, fjölmiðlar. Fundurinn er sá fyrsti í fundaröð um fjölmenningu sem háskólinn hefur boðað til.Viðhorf sem eru að tapa Ólafur segir tilkomu sérstakra lýðhyggjuflokka frekar vera varnarviðbrögð viðhorfa sem hafi alltaf verið til staðar en eigi undir högg að sækja, hóps sem finni að skoðanir hans um samfélagsgerð séu að verða undir Hann bendir á að þótt pópúlískir flokkar séu að fá 10-20 prósent fylgi á Norðurlöndum þá þýði það um leið að 80-90 prósent kjósenda þar kjósi aðra flokka. „Þannig að í staðinn fyrir að þessi flokkar séu til marks um sókn þessara viðhorfa eru þeir til marks um að þessi viðhorf eru í vörn, þessi viðhorf hafa verið að tapa í samfélaginu undanfarna áratugi."Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði segir mikilvægt að muna að kynþáttafordómar hafi alltaf verið til staðar í menningu NorðurlandaFordómarnir réttlættir Kristín Loftsdóttir prófessor í mannfræði segir þá sýn vera ríkjandi á Norðurlöndum að þau hafi ekkert haft með nýlendustefnu Vesturlanda að gera. Hinsvegar hafi bæði fræðimenn og ráðamenn á Norðurlöndunum, þar með talið Íslandi, átt mjög virkan þátt í því að breiða út boðskap kynþáttahyggju frá lokum 19. aldar og í byrjun þeirrar 20. „Maður sér það í umræðum á netinu hér á landi að fólk afsakar oft ummæli með því að Íslendingar hafi ekki átt neinar nýlendur, Ísland hafi sjálft verið nýlenda svo það hafi aldrei verið kynþáttahyggja hér og þess vegna sé allt í lagi að nota niðrandi hugtök," segir Kristín.Rasismi aldrei snúist eingöngu um húðlit Fólk reyni þannig að skilja sig frá viðhorfum fortíðar og í dag hafni flestir því að viðhorf þeirra endurspegli kynþáttahyggju og geti þar með ekki talist fordómafull. Hinsvegar hafi rasismi aldrei snúist eingöngu um húðlit. Hugmyndir um líkamlegt atgervi annars vegar og menningu hinsvegar hafi alltaf verið samstíga. „Þetta er svona kannski megineinkenni á kynþáttahyggjunni eins og hún birtist í dag, eftir að tilvísanir í útlit og litarhátt þóttu óásættanlegar, að þá hafa menning og trúarbrögð fengið stærri og stærri hlut sem útskýring á vanþróun ákveðinna hópa." Í dag séu það einkum múslímar sem séu útskúfaðir allt frá árásunum á tvíburaturnana 11. september, ekki vegna húðlitar heldur vegna þess að menning þeirra og trú sé sögð ósamrýmanleg þessum heimshluta. „Og núna í ljósi hryðjuverkanna sem áttur sér nýlega stað í París þá sjáum við líka að fordómar í garð þessa hóps í Evrópu hafa aukist mjög mikið, þrátt fyrir að þetta fólk hafi ekkert haft með það að gera sem þar gerðist, ekki neitt.Leiðrétt 26.11.2015Í fyrri útgáfu fréttar var ranglega farið með fylgistölur Svíþjóðardemókrata í þingkosningum. Það hefur hér með verið fjarlægt.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Sjá meira