Innlent

Elsti neminn í jóga er 93 ára

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
„Jóga veitir gleði og frið og mig langar að miðla því til annarra,“ segir Alda Magnúsdóttir jógakennari sem er fremst á myndinni.
„Jóga veitir gleði og frið og mig langar að miðla því til annarra,“ segir Alda Magnúsdóttir jógakennari sem er fremst á myndinni. vísir/vilhelm
Þegar Alda Magnúsdóttir hóf að kenna jóga fyrir rúmum áratug kenndi hún þrennum hjónum íþróttina á heimili sínu. Tvenn hjón voru fyrir framan hana þegar hún kenndi þeim jógastöðurnar en þau þriðju voru fyrir aftan hana, í öðru herbergi vegna skorts á rými.

Nú kennir Alda, sem er 72 ára, allt að 40 eldri borgurum jóga í sal í íbúðarhúsnæði aldraðra á Seltjarnarnesi. Elsti þátttakandinn er 93 ára.

Eftir að hafa sjálf lært jógaiðkun í kringum árið 2000 ákvað Alda, sem starfaði sem sjúkraliði þar til hún var 67 ára, að læra jógakennslu. „Jóga veitir gleði og frið og mig langaði til að miðla því til annarra. Ég byrjaði jógakennsluna með þrenn hjón til að styrkja hjónaband þeirra."

Alda, sem einnig kenndi í Jassballettskóla Báru í nokkur ár, segir nokkur hjón í hópi eldri borgaranna sem iðka jóga með henni tvisvar í viku, hálfa klukkustund í senn. Hún segir gleðina skína af þeim og öllum öðrum í hópnum. „Við gerum nokkrar jógastöður en leggjum mesta áherslu á öndunina. Fólkið talar um að þetta geri því gott. Þau eru öll rosalega glöð. Jóga hefur verið stundað í um sex þúsund ár og eykur hreysti og hamingju.“

Að sögn Öldu eru sumir í hópnum að hefja jógaiðkun í fyrsta skipti. „Það er enginn að spá í hvernig aðrir gera jógastöðurnar. Það hugsar hver og einn um að öðlast kyrrð og ró í hugann. Við erum oftar en ekki með hálflokuð augu.“

Hún tekur fram að hugarfarsbreyting verði hjá þeim sem stunda jóga vegna bættrar andlegrar og líkamlegrar líðanar. „Fólk á öllum aldri getur iðkað jóga. Nú er til dæmis farið að iðka bæði jóga og hugleiðslu í leikskólum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×