Innlent

Stílar fyrir ungabörn uppseldir

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Stílar fyrir ungabörn, Paracet í lægsta styrkleikaflokki, eru uppseldir á landinu. Von er á lyfjasendingu á næstu dögum en þangað til geta foreldrar tekið stíla í næsta styrkleikaflokki í tvennt.

Samkvæmt upplýsingum frá Lyfju eru lyfin í umpökkun en gert er ráð fyrir að þau verði komin í verslanir á föstudag. Lyfjafræðingur í Lyfju segir að til séu 125 milligramma stílar en að mikilvægt sé að þeir séu skornir langsum til hálfs. Þá sé nóg til af mixtúrum fyrir börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×