Spá 3,8 prósenta verðbólgu á næsta ári Sæunn Gísladóttir skrifar 30. október 2015 09:00 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, varar við að ekki sé nóg aðhald í ríkisfjármálum. vísir/vilhelm
Samkvæmt nýrri spá hagdeildar ASÍ má gera ráð fyrir 3,8 prósenta verðbólgu árið 2016. Hún verði svo 3,5 prósent árið 2017. Hagdeildin spáir því að umsvif í hagkerfinu muni vaxa hratt á næstu árum, verðbólga muni fara yfir markmið Seðlabankans og hætta á ofhitnun í hagkerfinu muni aukast gangi spáin eftir. Samkvæmt spánni verður góður hagvöxtur næstu tvö árin. Hagvöxturinn verður drifinn áfram af vexti þjóðarútgjalda, þar sem einkaneysla og fjárfestingar vaxa mikið og gangi spáin eftir fara fjárfestingar yfir 20 prósent af landsframleiðslu á spátímanum. ASÍ spáir 4,3 prósenta aukningu í landsframleiðslu árið 2015, 4,1 prósents aukningu árið 2016 og 3,3 prósenta árið 2017. ASÍ telur mikilvægt við núverandi stöðu í hagkerfinu að ríki og sveitarfélög sýni aðhald í rekstri en sú sé ekki raunin. Mikilvægt sé að rjúfa þann vítahring að hver hópur á vinnumarkaði hafi farið fram og reynt að rétta sinn hlut óháð því hvaða áhrif slíkt hefði á aðra hópa eða hagkerfið. Jafna þarf stöðu ólíkra hópa á vinnumarkaði og vinna að því að launahækkanir samræmist efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma. Spá ASÍ byggist á þeirri forsendu að það takist, ef ekki verða verðbólguhorfur mun lakari en í spánni. Spáin gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði 3,1 prósent 2015, þrjú prósent 2016 og 2,9 prósent 2017. Einnig er spáð áframhaldandi fjölgun ferðamanna hér á landi. Því er ólíklegt að innlent vinnuafl geti að öllu leyti mætt aukinni eftirspurn eftir vinnuafli. Til dæmis í mannvirkjagerð og ferðaþjónustu.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira