Einar Benediktsson kominn „heim“ við Höfða Stefán Ó. Jónsson skrifar 31. október 2015 18:36 mynd/aðsend
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók formlega á móti höggmynd af Einari Benediktssyni við Höfða, fyrrum heimili skáldsins, í dag á Degi ljóðsins sem jafnframt er fæðingardagur skáldsins. Verkið er eftir Ásmund Sveinsson og var sett upp á Klambratúni árið 1964 þar sem það hefur staðið þar til nú. Borgarráð samþykkti á síðasta ári að færa styttuna af Klambratúni og tók þannig undir áskorun frá áhugahópi um skáldið sem taldi að minningu Einars væri meiri sómi sýndur með því að koma verkinu fyrir í nágrenni Höfða þar sem hann bjó um tíma. Dagur B. Eggertsson og höggmynd Ásmundar í bakgrunni.mynd/aðsendListasafn Reykjavíkur hafði umsjón með flutningi styttunnar en jafnframt veittu mennta- og menningarmálaráðuneytið, Eimskip, Hvalur hf., Landsvirkjun, Mjólkursamsalan, Síminn og áhugahópur um minningu skáldsins verkefninu mikilvægan stuðning. Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO hefur sett upp bókmenntamerkingu við Höfða þar sem hægt er að kynna sér sögu skáldsins. Á svokölluðum skáldabekk er hægt að hlusta á upplestur, á íslensku og ensku, á ljóðunum Brim og Norðurljós eftir Einar Benediktsson. Upplesturinn má nálgast með snjallsíma í gegnum QR kóða.Á vef Reykjavíkurborgar segir að Einar Benediktsson (1864-1940) hafi verið skáld og athafnamaður sem bjó í Höfða á árunum 1914-1917. „Hann var heimsborgari og hugsjónamaður, ferðaðist víða og lagði fram nýstárlegar og stórbrotnar hugmyndir um þjóðfélagsumbætur, sem hafa haldið nafni hans á lofti, þótt þær yrðu ekki allar að veruleika. Það er þó fyrst og fremst ljóðlist Einars sem lifir og er hann talinn meðal helstu ljóðskálda íslensku þjóðarinnar,“ eins og þar segir. Höggmynd Ásmunds Sveinssonar (1893-1982) sýnir skáldið standandi við hörpu, tákn skáldskaparins. Í heild er verkið sex metrar að hæð og vildi Ásmundur sýna að Einar væri stór í öllu, hann gæti ekki hugsað smátt. Útgáfufélagið Bragi kostaði gerð myndarinnar og gaf borgarbúum árið 1964.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Baldur til Eyja Innlent Fleiri fréttir Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Sjá meira