Réðst á maka sinn fyrir framan lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 28. október 2015 07:26 Í gærkvöldi var tilkynnt um mögulegan ölvaðan ökumann. Sá var á endanum stöðvaður, en hann reyndist ekki bara ölvaður, heldur var hann einnig undir áhrifum ýmissa fíkniefna og sviptur ökuréttindum. Vísir/Vilhelm
Heimilisofbeldismál komu upp hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Tilkynning hafði borist um rifrildi á milli sambýlisfólks og kom áfengi þar við sögu. Þegar lögregluþjónar komu á vettvang urðu átök á milli fólksins og réðist annar á hinn fyrir framan lögreglu. Sá var handtekinn, samkvæmt dagbók lögreglunnar, og vistaður í fangageymslu. Þriggja ára barn var á heimilinu. Í gærkvöldi var tilkynnt um mögulegan ölvaðan ökumann. Sá var á endanum stöðvaður, en hann reyndist ekki bara ölvaður, heldur var hann einnig undir áhrifum ýmissa fíkniefna og sviptur ökuréttindum. Barnsmóðir hans og þriggja ára barn voru einnig í bílnum samkvæmt lögreglu. Nokkur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglun, en þó án þess að einhver slasaðist. Í dagbók lögreglunnar segir að betur hafi farið en á horfðist þegar bíl var ekið á þrjá kyrrstæða bíla, en kveikjan á óhappinu var mögulega veikindi.Þónokkur ölvun Þá var tilkynnt um eld í rusli við íbúðarhús rétt eftir klukkan fimm í gær. Íbúi og vegfarandi sem tilkynntu eldinn slökktu hann og ekki er vitað hver upptök hans voru. Eldurinn logaði í rusli sem lá utan við innganginn en lögreglan segir litla hættu hafa verið á ferð. Þónokkur útköll voru vegna ölvaðs fólks og voru nokkrir útigangsmenn aðstoðaðir í ýmiss athvörf. Einn þáði þó gistingu á stöðinni. Samkvæmt lögreglunni var um dreng undir lögaldri að ræða í einu málanna. Hann sagðist eiga í sambandsvandamálum og því hefði hann stolist í áfengi. Málið var tilkynnt til Barnaverndar. Þar að auki barst til lögreglu tilkynning um öldauðan mann sem reyndist frekar rænulítill þegar lögregluþjóna bar að garði. Ekki var hægt finna út hvar hann ætti heima og var ákveðið að vista hann í fangaklefa.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira