Seðlabankinn veitir slitabúum undanþágu Sæunn Gísladóttir skrifar 28. október 2015 15:17 Már Guðmundsson seðlabankastjóri. vísir/vilhelm
Seðlabanki Íslands veitir slitastjórnum þriggja stærstu föllnu viðskiptabankanna, Kaupþings hf., Glitnis hf. og LBI hf. undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál, vegna fyrirhugaðra nauðasamninga við kröfuhafa sína og loka slitameðferðar félaganna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Seðlabankans. Fram kemur í tilkynningunni að samkvæmt áskilnaði 7. gr. laga um gjaldeyrismál sé aðeins unnt að veita undanþágu frá takmörkunum laganna ef tryggt er að stöðugleika í gengis- og peningamálum og fjármálalegum stöðugleika verði ekki raskað vegna slita þeirra. Forsenda þess að uppgjör fallinna viðskiptabanka og sparisjóða valdi ekki óstöðugleika er að gripið verði til ráðstafana til mótvægis þeim neikvæðu áhrifum sem stafa af útgreiðslum innlendra eigna til erlendra kröfuhafa. Það er mat bankans að drögin uppfylli kröfur laga um gjaldeyrismál um að efndir nauðasamninganna ásamt fyrirhuguðum mótvægisráðstöfunum leiði hvorki til óstöðugleika í gengis- og peningamálum né raski fjármálastöðugleika. Samráð skv. 13.gr. c laga um gjaldeyrismál hefur farið fram og hefur ráðherra kynnt niðurstöðuna fyrir efnahags- og viðskiptanefnd.Hér má lesa greinargerð Seðlabankans um málið.
Mest lesið Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Erlendu ráðgjafarnir fengu mun hærri laun Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Lindex á Íslandi lækkar verð um allt að 22 prósent Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira