Uppgjör slitabúanna á að hafa jákvæð áhrif á gjaldeyrisforðann ingvar haraldsson skrifar 28. október 2015 16:09 Sigurður Hannesson, sem á sæti í framkvæmdahóp um afnám hafta á fundinum sem lauk fyrir skömmu. vísir/gva
Gert er ráð fyrir að uppgjör slitabúa föllnu bankanna hafi jákvæð áhrif á gjaldeyrisforða Seðlabanka Íslands um 41 milljarð króna. Þetta kom fram í kynningu stjórnvalda á uppgjöri slitabúanna nú fyrir skömmu. Miðað er við að að mótvægisaðgerðir stjórnvalda vegna uppgjörs búanna nemi 856 milljörðum króna. Hins vegar nemi krónueignir slitabúanna þriggja 576 milljörðum króna og kröfur slitabúanna á innlenda aðila í erlendri mynt nemi 239 milljörðum króna. Því sé heildarumfang greiðsluvandans sem snúi að slitabúunum 815 milljarðar, 41 milljarði lægri en aðgerðir stjórnvalda eigi að skila. Þá er búist við að stöðugleikaframlag slitabúanna skili 379 milljörðum króna. Þar af nemi stöðugleikaframlag Glitnis hf. 229 milljörðum króna, Kaupþings hf. um 127 milljörðum króna og LBI 23 milljörðum króna. Sú upphæð gæti þó hækkað ef Arion banki verður seldur á hærra verði og lágt metnar eignir reynast verðmætari, en gert er ráð fyrir. Gert er ráð fyrir að skuldalengingar og uppgreiðsla lánafyrirgreiðslu hafi jákvæð áhrif sem nemi samtals 151 milljarði króna. Einnig er gert ráð fyrir að endurheimtur núverandi krafna í eigu Eignasafns Seðlabanka Íslands á slitabúin styrki gjaldeyrisforðann um 81 milljarði króna. Þá er gert ráð fyrir að endurfjármögnunar búanna á fyrirgreiðslu Seðlabankans og ríkisins til nýju viðskiptabankana og gjaldeyrisendurheimtna ESÍ hafi jákvæð áhrif á gjaldeyrisforðann um 69 milljarða króna.
Mest lesið Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Erlendu ráðgjafarnir fengu mun hærri laun Viðskipti innlent Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Lindex á Íslandi lækkar verð um allt að 22 prósent Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Sjá meira