Konur þurfa að fleygja sér í sófann Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 29. október 2015 07:00 Langvarandi streita getur haft alvarleg áhrif á heilsuna. NORDICPHOTOS/GETTY
Konur þurfa að læra að fleygja sér í sófann þegar þær koma heim úr vinnunni eða á gólfið til að leika við börnin áður en þær taka til við heimilisstörfin. Maður þarf að æfa sig í að slaka á í tíu mínútur. Þetta segir Ane Marie Thulstrup, yfirlæknir á háskólasjúkrahúsinu í Árósum í Danmörku, í viðtali við danska ríkisútvarpið. Niðurstöður rannsóknar á þvagi karla og kvenna sýna að streita í líkama karla minnkar hratt eftir að þeir koma heim úr vinnunni en hjá konum minnkar streitan ekki fyrr en á milli klukkan 22 og 23 á kvöldin. Það bendi til að konurnar séu önnum kafnar lengi eftir að vinnu utan heimilis lýkur, að því er segir á vef útvarpsins. Þar segir jafnframt að miklu fleiri konur séu haldnar streitu en karlar. Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá landlækni, segir rannsóknir benda til að streita sé að verða eitt algengasta vinnutengda vandamál hins vestræna heims. „Streita getur verið hvetjandi í sjálfu sér og hjálpað fólki að ráða við krefjandi aðstæður. Hins vegar segja fræðimenn að verði streita viðvarandi og illviðráðanleg hafi hún slæm áhrif á heilsu fólks.“Mikilvægt er að stjórnendur vinnustaða geri sér grein fyrir því að mælikvarðar á árangur starfsemi vinnustaðarins taka ætíð bæði til heilsu og velferðar starfsmanna og framleiðni fyrirtækisins. Anna Björg Aradóttir, sviðsstjóri hjá landlækni. Anna Björg AradóttirAð sögn Önnu getur langvarandi streita haft í för með sér þunglyndi, kvíða, kulnun, truflun á ónæmiskerfi og hjarta- og æðasjúkdóma. „Mikilvægt er að stjórnendur vinnustaða geri sér grein fyrir því að mælikvarðar á árangur starfsemi vinnustaðarins taka ætíð bæði til heilsu og velferðar starfsmanna og framleiðni fyrirtækisins.“ Danski yfirlæknirinn segir konur oft skrifa tölvupósta seint á kvöldin. Á vinnutíma séu þær að hugsa um það sem þær þurfi að gera þegar heim er komið. Nauðsynlegt sé að læra að einbeita sér að starfinu á vinnutíma og að fjölskyldunni þegar maður er heima. Það er mat læknisins að margar konur gætu haft gagn af því að draga úr kröfunum sem þeir gera til sín eða greiða fyrir heimilishjálp þannig að þær hafi tíma til að slaka á í sófanum. Bent er á að konur sinni heimilisstörfum í miklu meiri mæli en karlar.
Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira