Glamour

Bannaði Lancôme að nota Photoshop

Ritstjórn skrifar
Kate Winslet
Kate Winslet Glamour/getty
Leikkonan Kate Winslet hefur alla tíð talað gegn því að myndir af henni séu of unnar í myndvinnsluforritinu Photoshop og hún látin virka yngri.

Á dögunum sagði Winslet í samtali við E-news á Elle Women in Hollywood-hátíðinni, að í samning sem hún gerði við snyrtivörufyrirtækið Lancôme hafi hún látið setja klausu þar sem hún bannar þeim að eiga við myndir af henni í auglýsingunum.

Hún segist hafa gert þetta þar sem henni finnst hún bera skylda til þess gagnvart ungum stelpum í dag. Þær sjái auglýsingar og myndir út um allt þar sem búið er að vinna myndirnar óeðlilega. Með því að láta ekki vinna myndirnar af sér, vilji hún vera þeim góð fyrirmynd.

„Ég vil heldur vera konan þar sem fólk segir að hafi elst, heldur að fólk haldi að ég sé freðin.“

Því eru allar myndirnar af henni í auglýsingaherferð Lancôme óunnar. Vonum við á ritstjórn Glamour að þetta sé bara byrjunin og að fleiri þekktar konur taki Winslet sér til fyrirmyndar og veri góð fyrirmynd.






×