Innlent

Biskup braut jafnréttislög

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Vísir/Anton
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, braut jafnréttislög þegar hún skipaði Þráin Haraldsson prest í Garðaprestakalli á Akranesi í janúar á þessu ári.

Þetta er niðurstaða kærunefndar jafnréttismála sem kvað upp úrskurð sinn í seinustu viku. Frá málinu er greint á vef Skessuhorns en úrskurðurinn hefur enn ekki verið birtur á vef velferðarráðuneytisins.

Tíu sóttu um starfið og þar á meðal Úrsúla Árnadóttir prestur. Hún kærði skipan Þráins í starfið þann 13. maí en valnefnd Garðaprestakalls komst að þeirri niðurstöðu að skipa ætti hann og staðfesti biskup það.  

Að mati kærunefndar jafnréttismála var skipan Þráins ekki í samræmi við jafnréttislög og kemur fram á vef Skessuhorns að Úrsúla íhugi nú hvort hún ætli að leggja fram kæru vegna málsins eða ekki.

Samkvæmt frétt Skessuhorns komst kærunefndin að þeirri niðurstöðu að biskup hefði brotið gegn 1. mgr. 26. gr. jafnréttislaga sem hljóðar svo:

„Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna umsækjendum um starf á grundvelli kyns. Sama gildir um stöðuhækkun, stöðubreytingar, endurmenntun, símenntun, starfsþjálfun, námsleyfi, uppsögn, vinnuaðstæður og vinnuskilyrði starfsmanna.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×