Viðskipti innlent

Íbúðalánasjóður býður sveitarfélögum að kaupa fasteignir

ingvar haraldsson skrifar
Íbúðalánasjóður á 248 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Íbúðalánasjóður á 248 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. vísir/Pjetur
Íbúðalánasjóður hefur að undanförnu sett sig í samband við sveitarfélög þar sem sjóðurinn á eignir og bjóða þeim til viðræðna um að sveitarfélögin kaupi fasteignirnar af sjóðnum.

Kaup sveitarfélaga á íbúðum gætu létt undir með þeim vanda sem sagður er vera uppi á almennum og félagslegum leigumarkaði.

„Mikil umræða hefur verið um skort á húsnæði á þéttbýlisstöðum víða um land. Bæði er skortur á félagslegu og almennu leiguhúsnæði. Sumar af þeim fasteignum sem lent hafa hjá Íbúðalánasjóði eftir hrun þarfnast töluverðra endurbóta og bíður það nýrra eigenda að ráðast í þær. Stór hluti íbúðanna er leigður út, gjarnan til þeirra sem áður bjuggu í eignunum,“ segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði.

„Í þeim tilfellum sem fjárhagur sveitarfélaganna leyfir ekki fjárfestingu af þessu tagi gætu viðræðurnar skilað hugmyndum um aðrar leiðir til að koma nýtingu og eignarhaldi fasteignanna sem fyrst í framtíðarhorf.“

Þriðjungur fasteigna á Suðurnesjum

Íbúðalánasjóður á 1.503 fasteignir, þar af 503 á Suðurnesjum, 248 á höfuðborgarsvæðinu, 150 á Vesturlandi, 235 á Austurlandi og 189 á Suðurlandi.

Ágúst Kr. Björnsson, forstöðumaður fasteigna hjá Íbúðalánasjóði, segir að rætt hafi verið símleiðis við forsvarsmenn sveitarfélaga og þeim hafi einnig verið send bréf þar sem möguleikar á að sveitarfélög kaupi einhvern hluta fasteigna Íbúðalánasjóðs voru viðruð.

„Í mörgum þessara sveitarfélaga er umtalsverð þörf á að auka framboð húsnæðis og ýmis sveitarfélög hafa skoðað möguleikann á stofnun leigufélaga. Ef Íbúðalánasjóður getur með einhverjum hætti komið að þessu verkefni þá væri það í góðu samræmi við markmið sjóðsins um að stuðla að framboði af húsnæði á viðráðanlegu verði. Markmið okkar er að losa um mikinn hluta  fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Íbúðalánasjóður hefur áhuga á að taka höndum saman með sveitarfélögunum í landinu og vinna að farsælli lausn þessara mála og stuðla þannig að húsnæðisöryggi um allt land,“ segir Ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×