Íbúðalánasjóður býður sveitarfélögum að kaupa fasteignir ingvar haraldsson skrifar 1. október 2015 11:26 Íbúðalánasjóður á 248 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. vísir/Pjetur
Íbúðalánasjóður hefur að undanförnu sett sig í samband við sveitarfélög þar sem sjóðurinn á eignir og bjóða þeim til viðræðna um að sveitarfélögin kaupi fasteignirnar af sjóðnum. Kaup sveitarfélaga á íbúðum gætu létt undir með þeim vanda sem sagður er vera uppi á almennum og félagslegum leigumarkaði. „Mikil umræða hefur verið um skort á húsnæði á þéttbýlisstöðum víða um land. Bæði er skortur á félagslegu og almennu leiguhúsnæði. Sumar af þeim fasteignum sem lent hafa hjá Íbúðalánasjóði eftir hrun þarfnast töluverðra endurbóta og bíður það nýrra eigenda að ráðast í þær. Stór hluti íbúðanna er leigður út, gjarnan til þeirra sem áður bjuggu í eignunum,“ segir í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði. „Í þeim tilfellum sem fjárhagur sveitarfélaganna leyfir ekki fjárfestingu af þessu tagi gætu viðræðurnar skilað hugmyndum um aðrar leiðir til að koma nýtingu og eignarhaldi fasteignanna sem fyrst í framtíðarhorf.“Þriðjungur fasteigna á SuðurnesjumÍbúðalánasjóður á 1.503 fasteignir, þar af 503 á Suðurnesjum, 248 á höfuðborgarsvæðinu, 150 á Vesturlandi, 235 á Austurlandi og 189 á Suðurlandi. Ágúst Kr. Björnsson, forstöðumaður fasteigna hjá Íbúðalánasjóði, segir að rætt hafi verið símleiðis við forsvarsmenn sveitarfélaga og þeim hafi einnig verið send bréf þar sem möguleikar á að sveitarfélög kaupi einhvern hluta fasteigna Íbúðalánasjóðs voru viðruð. „Í mörgum þessara sveitarfélaga er umtalsverð þörf á að auka framboð húsnæðis og ýmis sveitarfélög hafa skoðað möguleikann á stofnun leigufélaga. Ef Íbúðalánasjóður getur með einhverjum hætti komið að þessu verkefni þá væri það í góðu samræmi við markmið sjóðsins um að stuðla að framboði af húsnæði á viðráðanlegu verði. Markmið okkar er að losa um mikinn hluta fasteigna sjóðsins á þessu og næsta ári. Íbúðalánasjóður hefur áhuga á að taka höndum saman með sveitarfélögunum í landinu og vinna að farsælli lausn þessara mála og stuðla þannig að húsnæðisöryggi um allt land,“ segir Ágúst.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira