Maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Akranesi látinn Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2015 16:43 Frá Akranesi. Vísir/gva
Maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás á Akranesi síðastliðinn föstudag lést síðdegis í dag. Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manninum sem er grunaður um að hafa ráðist á manninn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi sem var kölluð að húsi á Akranesi ásamt sjúkraflutningamönnum síðastliðinn föstudag eftir að tilkynnt hafði verið um meðvitundarlausan mann og líklega væri um hengingu að ræða. Á vettvangi var vitni sem kom að og hafði hafið endurlífgun. Sá meðvitundarlausi, maður á sextugsaldri, var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi þar sem hann var lagður inn á gjörgæslu og haldið sofandi í öndunarvél. Hann lést á síðdegis í dag. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. Við komu lögreglu og sjúkraflutningamanna á staðinn var annar maður, á fertugsaldri, á vettvangi og var hann handtekinn skömmu síðar grunaður um tilraun til manndráps. Sá var síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald til 14. október í Héraðsdómi Vesturlands og var sá úrskurður kærður til Hæstaréttar sem hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Vesturlands. Lögreglan á Vesturlandi rannsakar málið með stuðningi tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og segir rannsókn málsins miða vel.
Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Innlent Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Fleiri fréttir Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Þyrlan kölluð út vegna reiðslyss Kjósendur Jóns Gnarr líklegastir til að vera ósáttir með Höllu Vilja banna hvalveiðar með lögum Áttatíu prósent af plasti í fjörum landsins kemur frá útlöndum Efast um að ráðherrar nái fram markmiði sínu Tveimur haldið sofandi vegna slyssins Rútuslys í Öxnadal og meintar rangfærslur ráðherra Guðni snýr aftur í sagnfræðina Leita að nýju húsnæði fyrir kaffistofu Samhjálpar Öxnadalsheiði opin á ný Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Bein útsending: Brautskráningar Háskóla Íslands Sjá meira