ESA skoðar ekki frekar ráðstafanir sem varða frádrátt frá stöðugleikaskatti Sæunn Gísladóttir skrifar 21. september 2015 16:31 Áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta var kynnt í júní. Vísir/GVA
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hyggst ekki taka til frekari skoðunar ráðstafanir íslenskra stjórnvalda í tengslum við aðgerðaáætlun um losun fjármagnshafta, sem varða frádrátt frá stöðugleikaskatti og framlag í samræmi við stöðugleikaskilyrði. Þetta kemur fram í frétt á vef Fjármálaráðuneytisins. Segir í fréttinni að niðurstaðan sé mikilvægur áfangi í áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta. Íslensk stjórnvöld upplýstu stofnunina fyrr á þessu ári um heimildir til frádráttar frá stöðugleikaskatti og um áætlanir um viðtöku stöðugleikaframlags. Þeim sjónarmiðum var jafnframt velt upp hvort í slíkum ráðstöfunum, sem tengdust fjármálagerningum starfandi banka og sparisjóða, gæti falist óbein ríkisaðstoð í skilningi 1. mgr. 61. gr. EES- samningsins. Um leið voru færð rök fyrir því að þar sem umræddar heimildir væru hluti af verndarráðstöfunum vegna röskunar á íslenskum fjármagnsmarkaði og erfiðleika tengdum greiðslujöfnuði, féllu þær ekki undir eftirlit ESA, með vísan til 2. og 4. mgr. 43. gr. EES-samningins. Ráðstafanir sem falla undir þessi ákvæði eru tilkynntar til sameiginlegu EES-nefndarinnar samkvæmt 45. gr. EES-samningsins. Málinu er nú lokið með ákvörðun ESA um að aðhafast ekki frekar vegna þess, enda falli ráðstafanir í tengslum við áætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta, ekki undir valdsvið stofnunarinnar.
Mest lesið Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira