Viðskipti innlent

Vilja að Fjármálaeftirlitið kanni hvort stjórnendur banka og kortafyrirtækja séu vanhæfir

Sæunn Gísladóttir skrifar
Jóhannes Ingi Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar.
Jóhannes Ingi Kolbeinsson er framkvæmdastjóri Kortaþjónustunnar. Vísir/Arnþór Birkisson
Kortaþjónustan sendi í dag Fjármálaeftirlitinu erindi þar sem farið er fram á að FME kanni hæfi nafngreindra stjórnenda fjármálafyrirtækjanna Borgunar, Valitors, Arion banka, Landsbankans og Íslandsbanka. Telur Kortaþjónustan að stjórnendurnir uppfylli ekki hæfisskilyrði laga um fjármálafyrirtæki þar sem þeir stýrðu fyrirtækjunum þegar þar voru ástunduð samkeppnislagabrot gagnvart Kortaþjónustunni, og stýra þeim enn. Stjórnendurnir hafa viðurkennt lögbrotin, sem voru gróf, langvarandi og með því markmiði að skerða samkeppnishæfni Kortaþjónustunnar, segir í tilkynningu frá Kortaþjónustunni.

Lög um fjármálafyrirtæki setja ákveðin skilyrði fyrir hæfi stjórnarmanna og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja. Umrædd samkeppnislagabrot voru mjög alvarleg, umfangsmikil og áttu sér stað yfir langt tímabil samkvæmt ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins. Kortaþjónustan telur því fullt tilefni til að Fjármálaeftirlitið kanni hvort aðkoma viðkomandi stjórnenda að brotunum geri þá óhæfa til að stýra fjármálafyrirtækjum.

Í erindinu er meðal annars vakin athygli á að brotin hafi skaðað viðkomandi fjármálafyrirtæki stórkostlega þar sem samanlagðar sektargreiðslur vegna brotanna nema samtals 2.855 milljónum króna.

Jafnframt er bent á að Samkeppniseftirlitið hafi gert sátt við fjármálafyrirtækin, sem stjórnendur þeirra skrifuðu upp á, þar sem þau viðurkenndu lögbrotin en um leið var samið um að Samkeppniseftirlitið myndi ekki kæra viðkomandi stjórnendur til lögreglu. Telur Kortaþjónustan að þótt stjórnendurnir hafi þannig getað samið sig frá ákæru eigi Fjármálaeftirlitið engu að síður að endurmeta hæfi þeirra og koma í veg fyrir að umrætt fólk, sem augljóslega hefði verið hægt að dæma fyrir brot á samkeppnislögum og jafnvel almennum hegningarlögum, stýri fjármálafyrirtækjum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×