Góður gangur hjá félögum Helga Sæunn Gísladóttir skrifar 29. september 2015 14:03 Helgi Vilhjálmsson á KFC og Góu-Lindu. Vísir/GVA
Sala hjá tveimur fyrirtækjum í eigu Helga Vilhjálmssonar, Góu-Lindu og KFC jókst á milli ára og nam hagnaður af rekstri fyrirtækjanna samtals 143 milljónum króna árið 2014. Rekstrartekjur sælgætisgerðarinnar Góu-Lindu á árinu námu 986 milljónum króna og jukust um tæpar 30 milljónir króna milli ára. Rekstrarhagnaður nam 41 milljón króna og jókst um 14 milljónir króna milli ára. Hagnaður fyrir tekjuskatt tvöfaldaðist milli ára og nam 28 milljónum króna. Hagnaður ársins nam 22,8 milljónum króna og jókst um rúmlega 9 milljónir króna milli ára. Eignir í árslok numu 766 milljónum króna og lækkuð eilítið milli ára. Bókfært eigið fé nam 514 milljónum króna.Laun framkvæmdastjóra Góu-Lindu 10,6 milljónirLaun og launatengd gjöld námu 263 milljónum króna á árinu og hækkuðu um tæpar 20 milljónir milli ára þrátt fyrir að stöðugildum fækkaði um þrjú. Laun framkvæmdastjóra námu 10,6 milljónum króna á árinu, samanborið við 9,5 milljónir árið áður. Góa-Linda er í 92% eigu Helga Vilhjálmssonar, ekki var greiddur út arður vegna ársins 2014.Hagnaður KFC þrefaldaðist milli áraKFC sem er í 100% eigu Helga Vilhjálmssonar, hagnaðist um 120,5 milljónir króna á árinu. Hagnaðurinn þrefaldaðist milli ára. Bókfært eigið fé í árslok var 455 milljónir króna. Í árslok námu eignir samtals 830 milljónum króna. Rekstrartekjur KFC námu 2,4 milljörðum króna og jukust um 200 milljónir milli ára. Rekstrarhagnaður nam 159 milljónum króna og tæplega þrefaldaðist milli ára. Handbært fé í árslok nam 120 milljónum króna, samanborið við 87 milljónir króna í árslok 2013. Á árinu störfuðu að meðaltali 172 starfsmenn hjá félaginu og námu launagreiðslur samtals 697,1 milljón króna. Starfsmönnum fjölgaði um 12 á árinu. Laun framkvæmdastjóra námu 11,3 milljónum króna. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður að fjárhæð 50,0 milljónir króna vegna ársins 2014.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira