Viðskipti innlent

AGR og Reynd sameinast

Atli Ísleifsson skrifar
Haukur Hannesson er framkvæmdastjóri AGR-Reynd ehf.
Haukur Hannesson er framkvæmdastjóri AGR-Reynd ehf. Mynd/AGR-Reynd
Fyrirtækin AGR og Reynd hafa sameinast og munu bjóða Dynamics NAV viðskiptalausnir samhliða vörustjórnunarlausnum AGR á innlendan og erlendan markað.

Í tilkynningu kemur fram að sameinað félag verði með starfsemi í Bretlandi og Danmörku en öll þróun fari fram hérlendis. „Meirihluti tekna félagsins kemur erlendis frá í gegnum fjölbreyttan hóp viðskiptavina, en fyrirtækið þjónustar meðal annars alþjóðlega viðskiptavini á borð við Le Creuset, BoConcept, IKEA í Saudí Arabíu, Best Denki í Singapore ásamt meirihluta þeirra skemmtiferðaskipa sem koma til landsins.

Frá árinu 1997 hefur AGR sérhæft sig í hugbúnaðargerð og ráðgjöf á sviði aðfangastýringar en hugbúnaðurinn er í notkun hjá mörgum af öflugustu fyrirtækjum landsins. Sérstaða Reyndar byggir á Dynamics NAV viðskiptakerfinu ásamt verslunarlausnum frá LS Retail. Sameinað fyrirtæki mun því geta á einum stað boðið ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu á NAV, einu vinsælasta viðskiptakerfi í heiminum, samhliða lausnum og ráðgjöf í vörustjórnun gegnum AGR hugbúnaðinn.“

Haukur Hannesson, framkvæmdastjóri hjá AGR-Reynd ehf., segir að með stofnun AGR-Reyndar sé verið að sameina helstu sérfræðinga landsins í vörustjórnun við einhverja reynslumestu sérfræðinga landsins í innleiðingu og þjónustu á NAV viðskiptahugbúnaðnum.

„Sérstaða okkar byggir á því að bjóða fyrsta flokks vörustjórnunarþekkingu til viðbótar við öfluga þjónustu á Dynamics NAV. Stærra teymi eflir ennfremur vöruþróun og breikkar þjónustuframboð okkar til viðskiptavina, en starfsmenn hjá AGR-Reynd eru 43 í dag. Við munum á næstu vikum og mánuðum halda áfram að kynna nýjar hugbúnaðarlausnir til viðskiptavina okkar og ber þar helst að nefna veflausnina AGR5 ásamt appi sem gefur stjórnendum lykiltölur úr rekstrinum beint í snjallsímann,“ segir Haukur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×