Kröfur á hendur Kaupþingi lækka um rúmlega 19 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 10. september 2015 16:41 Handbært fé Kaupþings stóð í 408,8 milljörðum króna við lok annars ársfjórðungs. Vísir/GVA
Samkvæmt árshlutareikningi Kaupþings fyrir fyrri helming ársins lækkuðu kröfur á hendur Kaupþingi um 19,3 milljarða. Heildarfjárhæð samþykktra og umþrættra krafna í kröfuskrá nam 2.806,3 milljörðum króna í lok júní, skýrist lækkunin að mestu leyti að úrlausn ágreiningsmála, segir í tilkynningu. Bókfært virði eigna Kaupþings í lok júní 2015 nam 837,7 milljörðum króna og jókst um 37,9 milljarða eða um 4,7% á fyrri helmingi ársins. Mælt í evrum jókst verðmæti eignasafnsins um 507 milljónir eða um 9,8%. Hrein virðisbreyting eigna var jákvæð á tímabilinu og nam 44,4 milljörðum króna. Til viðbótar bókfærðum eignum voru í lok tímabilsins, 19,7 milljarðar króna geymdir á vörslureikning til að mæta umdeildum seint framkomnum forgangskröfum samanborið við 19,2 milljarða í lok árs 2014. Handbært fé Kaupþings stóð í 408,8 milljörðum króna við lok tímabilsins og jókst um 7 milljarða eða um 1,8%. Mælt í evrum, hækkaði handbært fé um 174 milljónir eða um 6,7%. Af 837,7 milljarða króna heildareignum, eru eignir í erlendum gjaldmiðlum metnar á 663,8 milljarða króna en eignir í íslenskum krónum eru metnar á 173,9 milljarða. Rekstrarkostnaður nemur 0,7% af bókfærðu virði eignaRekstrarkostnaður Kaupþings á fyrri helming ársins nam 2,8 milljörðum króna samanborið við 2,7 milljarða króna á sama tímabili í fyrra. Rúmlega helmingur rekstrarkostnaðarins, eða um 1,5 milljarður króna er vegna aðkeyptrar erlendrar sérfræðiráðgjafar. Rekstrarkostnaður Kaupþings á ársgrundvelli nam 0,7% af bókfærðu virði eigna og er hlutfallið óbreytt frá fyrra ári. Til viðbótar rekstrarkostnaði er gjaldfærður virðisaukaskattur vegna fyrri tímabila samkvæmt úrskurði ríkisskattstjóra að fjárhæð 1,7 milljarður.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira