Innlent

Lögreglumenn samningslausir í 134 daga

Birgir Olgeirsson skrifar
Frá eftirliti lögreglunnar á Vesturlandsvegi.
Frá eftirliti lögreglunnar á Vesturlandsvegi.
Lögreglumenn hafa verið samningslausir í 134 daga og sýndu samstöðu í verki með því að fara út á vegi landsins á þriðja tímanum í dag og sinna umferðareftirliti. Tóku lögreglumenn í öllum embættum landsins þátt í eftirlitinu þar sem þeir könnuðu ástand og réttindi ökumanna.

Vilja lögreglumenn koma því á framfæri að þeir séu langþreyttir á því að viðsemjendur þeirra nýti sér þá staðreynd að lögreglumenn hafi ekki rétt til verkfalla og geti því lítið beitt sér fyrir betri kjörum.

Skora lögreglumenn á ráðherra að beita sér fyrir því að samið verið við lögreglumenn og laun þeirra leiðrétt til samræmis við skyldur þeirra og mikilvægi starfsins.

Vilja lögreglumenn um allt land einnig hvetja alþingismenn, sama í hvaða flokki þeir eru, að styðja sjálfsagðan rétt lögreglumanna að fá aftur verkfallsréttindi.

Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að þeir ökumenn sem voru stöðvaðir voru ekki sektaðir og voru almennt ánægðir með störf lögreglunnar.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×